Hringdi barnið inn veikt vegna fátæktar 24. ágúst 2009 05:00 Katrín Jakobsdóttir
Foreldri sautján ára drengs, sem hefja átti nám í menntaskóla, hringdi hann inn veikan fyrsta daginn. Ekki voru til peningar til að kaupa námsbækur og skólavörur handa honum. Foreldrið er öryrki með þrjá syni á skólaaldri á framfæri. Það leitaði á náðir Fjölskylduhjálpar Íslands og fékk þaðan 20 þúsund krónur til bókakaupa, auk matvæla. Fjölskyldan hafði einnig fengið fimmtán þúsund krónur frá Hjálparstarfi kirkjunnar til bókakaupa. Henni hafði hins vegar verið synjað um aðstoð frá Félagsþjónustunni í Reykjavík, á grundvelli þess að þar sem foreldrið er öryrki sé það ekki á framfæri félagslega kerfisins. Samanlagðir duga styrkirnir ekki fyrir námsbókum og skólavörum allra drengjanna. Nemandi í framhaldsskóla getur gert ráð fyrir að greiða 50 til 60 þúsund krónur fyrir skólabækur. Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, segir að hvorki matur né mjólkurdropi hafi verið til á heimili fjölskyldunnar þegar hún leitaði til Fjölskylduhjálparinnar. Hún segir ekki nýtt að fólk með lítið á milli handanna leiti til hjálparsamtaka eftir aðstoð við skólabyrjun. Sá hópur hafi hins vegar stækkað til muna og þeir sem höfðu það slæmt áður hafi það enn verra í dag. „Við höfum þurft að synja fólki um aðstoð vegna námsbókakaupa, því við verðum að eiga fyrir mat vikulega. En þegar maður fær eins hrikalegt dæmi og þetta verður manni um og ó.“ Saga fjölskyldunnar kemur heim og saman við orð Þórhalls Heimissonar, prests í Hafnarfjarðarkirkju, sem vakti athygli á málinu í færslu á bloggsíðu sinni. Þar segist hann hafa átt erfið samtöl við fólk sem geti ekki látið börn sín byrja í skóla, þar sem ekki séu til peningar fyrir námsbókum og skólavörum. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segist taka fréttir af brottfalli nemenda úr skóla sökum fátæktar foreldra mjög alvarlega. „Við erum ekki búin að fá mynd af því hvað eru mikil brögð að þessu, þar sem skólasetningar voru á fimmtudag og föstudag. En við munum fylgjast vel með þessu,“ segir Katrín. Hún segir að þegar séu einhver úrræði í boði fyrir nemendur í þessari stöðu. Skoðað verði , í samstarfi við félagsmálayfirvöld, hvort nauðsyn beri til að efla þau. holmfridur@frettabladid.is
Mest lesið Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Innlent Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Innlent Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt Innlent Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Óvenjulegt fyrir göngufólk og sannkallað Spánarveður Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Lokametrarnir á Alþingi og veðurblíða um allt land Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli „Við erum bara happí og heimilislaus“ Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Sjá meira