Vinirnir reyndu að lífga hinn látna við 4. júlí 2009 06:30 Hafþór Hafsteinsson lést í flugslysinu.
Maðurinn sem slasaðist í flugslysinu við Selá í Vopnafirði í fyrradag liggur þungt haldinn í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Vinur hans lést í slysinu. Mennirnir komu til Vopnafjarðar á þriðja tímanum í fyrradag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins snæddu þeir með vinum í veiðihúsinu Hvammsgerði við Selá áður en þeir sneru aftur til Vopnafjarðar og hugðust fljúga suður til Mosfellsbæjar. Mennirnir höfðu báðir mikla reynslu af flugi. Í stað þess að fljúga rakleiðis suður flugu mennirnir aftur að veiðihúsinu í því skyni að kasta kveðju á vini sína úr vélinni. Þeir sátu í framsætum vélarinnar. Það var þá sem slysið varð; vélinni var flogið á raflínur og hrapaði til jarðar. Raflínurnar voru í um tíu metra hæð frá jörðu. Vinir mannanna úr veiðihúsinu urðu vitni að slysinu. Þeir hlupu þegar til og reyndu að koma vinum sínum til hjálpar. Þeir gerðu lífgunartilraunir á öðrum manninum, en hann hafði látist samstundis, og hlúðu að hinum særða. Spurður um viðbrögð mannanna segir Baldur Friðriksson, læknir á Vopnafirði, að þau hafi kannski ekki skipt sköpum. „En þetta var mjög góð tilraun til að bjarga því sem bjargað varð," segir Baldur. Fjöldi sjúkraliða og björgunarsveitarmanna kom að aðgerðinni. Aðkoman að slysinu var ófögur og var bæði vitnum og þeim sem að aðgerðinni komu boðin áfallahjálp í fyrrakvöld. Þá var þeim boðið til bænastundar í Vopnafjarðarkirkju um kvöldið. Starfi kirkjunnar við áfallahjálpina vegna málsins er þó hvergi nærri lokið, að sögn Brynhildar Óladóttur, starfandi prests í Vopnafjarðarkirkju. Flugvélin, sem er fjögurra sæta Cessna 180 með skráningarnúmerið TF-GUN, var flutt af slysstað eftir miðnætti og síðan ekið með hana í gámi til Reykjavíkur í gær. Nú mun Rannsóknarnefnd umferðarslysa rannsaka málið næstu mánuði, og meðal annars skoða vélina betur. Þetta er fyrsta banaslysið í íslenskri flugvél í níu ár, eða frá því að lítil tveggja hreyfla flugvél skall í Skerjafjörðinn í ágúst árið 2000. Þá létust sex manns. Þrjár erlendar vélar, með útlendinga innanborðs, hafa reyndar farist á þeim tíma í íslenskri lofthelgi.
Mest lesið Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Innlent Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Innlent Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira