Innlent

Norræn ráðstefna þvagfæraskurðlækna í Reykjavík

Fimm hundruð þvagfæraskurðlæknar og þvagfærahjúkrunafræðingar verða staddir á Hilton um helgina.
Fimm hundruð þvagfæraskurðlæknar og þvagfærahjúkrunafræðingar verða staddir á Hilton um helgina.

Búist er við fimmhundruð þvagfæraskurðlæknum og þvagfærahjúkrunarfræðingum á Hilton Nordica næstu helgi, 10-13 júní.

Er hér um að ræða fund sem haldinn er annað hvert ár á Norðurlöndunum og var hér síðast 1999.

Fyrirlesarar eru frá öllum Norðurlöndunum, Kanada, Bretlandi og víðar.

Meðal efnis sem fjallað verður um eru nýjungar í meðferð krabbameins i nýrum og blöðruhálskirtli svo og nýjungar i holspeglunaraðgerðum og notkun vélmenna við skurðaðgerðir.

Undirbúningur við ráðstefnu þessa hófst fyrir 4 árum og er þátttaka góð og hafa á fimmta hundrað þátttakenda skráð sig samkvæmt skipuleggjendum.

Ráðstefnan fer fram á Hilton Nordica hótelinu.

Allar upplýsingar og dagskrá ráðstefnunnar er að finna á slóðinni http://nuf2009.is/






Fleiri fréttir

Sjá meira


×