Breskur sjúklingur heldur matarbingó Atli Steinn Guðmundsson skrifar 17. september 2009 07:32 Sýnishorn af réttunum.
Sjúklingi á breskum spítala ofbýður svo maturinn sem fyrir hann er borinn að hann hefur birt myndir af honum á Netinu og býður almenningi að reyna að giska á um hvaða rétti sé að ræða. Ekki er ljóst hver sjúklingurinn er en hann er 47 ára gamall og liggur á sjúkrahúsi einhvers staðar á Suðvestur-Englandi. Hann dregur ekki fjöður yfir þá skoðun sína að hann telur matinn á sjúkrahúsinu hreinan viðbjóð og heldur úti netsíðu með því sem hann kallar matarbingó. Þar birtir hann myndir af matnum sem honum er borinn og biður netverja vinsamlegast að reyna að giska á hvað á diskinum sé hverju sinni. Að hans sögn hefur engum tekist að giska réttilega á neitt hingað til og reyndar er það engin furða ef marka má sýnishornin sem vefsíða Telegraph bregður upp og berja má augum á Vísi. Maðurinn mun þurfa að liggja nokkurn tíma á sjúkrahúsinu vegna sýkingar í beinmerg og líst hreinlega ekki á blikuna. Breska heilbrigðiseftirlitið segir meirihluta sjúklinga á spítulum landsins ánægða með mat sinn og allt sé gert til að gera henn sem best úr garði. Þessi tiltekni sjúklingur getur þó engan veginn fallist á að svo sé. Síðu mannsins má sjá hér.
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Innlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir alvarlegt lestarslys í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Sjá meira