Arnarnesræningjarnir dæmdir Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 2. júlí 2009 16:08
Tveir menn, þeir Kristján Víðir Kristjánsson og Hlynur Ingi Bragason, voru í dag dæmdir í fangelsi fyrir að ráðast inn á eldri hjón á Arnarnesi í apríl, svipta þau frelsi og ræna þau. Laufey Jóhanna Sigurpálsdóttir var einnig dæmd fyrir aðkomu sína að ráninu, auk stúlku sem er barnabarn hjónanna. Kristján hlaut tveggja og hálfs árs dóm en Hlynur tveggja ára auk ævilangrar ökuleyfissviptingar. Frá refsingu þeirra dregst rúmlega tveggja mánaða gæsluvarðhaldsvist. Laufey hlaut fimmtán mánaða dóm, en barnabarn hjónanna fimm mánuði skilorðsbundna. Horft var til ungs aldurs hennar, en hún var á sautjánda ári þegar brotið var framið. Vantaði fé fyrir fíkniefnum Barnabarn hjónanna hafði lagt til að farið yrði inn á heimilið þar sem verðmæti væru að finna auk þess sem hún lýsti innviðum hússins. Þau voru öll í fíkniefnaneyslu og þurftu verðmæti til að kaupa fíknefni. Þeir Kristján Víðir Kristjánsson og Hlynur Ingi Bragason fóru ránshendi um heimilið á meðan stúlkurnar biðu í bifreið fyrir utan. Þeir hringdu dyrabjöllu hússins og ruddust inn þegar eldri kona kom til dyra. Hún hafði verið að horfa á sjónvarp með manni sínum á neðri hæð hússins. Hótaði að stinga hjónin Kristján Víðir greip konuna og tók fyrir vit hennar með báðum höndum, sneri hana niður í gólf og skipaði henni að taka af sér alla skartgripi. Hann sló hana þremur þungum höggum í höfuðið er hún reyndi að komast á fætur og skipaði henni síðan að liggja á gólfinu með andlitið niður. Konan hlaut ýmis meiðsli á efri hluta líkamans vegna árásarinnar. Á meðan fór Hlynur Ingi í kjallara hússins þar sem eiginmaðurinn sat, lagði að honum hníf og hótaði að stinga hann ef hann hlýddi honum ekki. Hlynur færði hann síðan til konu sinnar og skipaði honum að liggja kyrr við hlið hennar. Hlynur gætti að hjónunum á meðan Kristján fór ránshendi um heimilið, og hótaði ítrekað að stinga þau ef þau litu upp. Áður en mennirnir yfirgáfu heimilið skáru þeir í sundur símalínur og hótuðu að skjóta hjónin á færi ef þau hreyfðu sig næstu tíu til fimmtán mínúturnar. Ránsferðin varði um tuttugu til þrjátíu mínútur. Gripin við að selja góssið Mennirnir héldu síðan á braut í bifreið sem Laufey Jóhanna Sigurpálsdóttir keyrði undir áhrifum fíkniefna, ásamt barnabarni hjónanna. Þeir höfðu með sér seðlaveski með fimmtíu þúsund krónum, fartölvu, farsíma, veggsíma og skartgripi að verðmæti rúmrar milljónar króna. Sumt var selt og reynt að selja annað. Upp komst um Laufeyju og Kristján þegar þau reyndu að selja gullsmið í Pósthússtræti góssið.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira