Fleiri slasast alvarlega í umferðinni 2. júlí 2009 03:00 Viðstöddum voru allir ánægðir með samninginn. Samgönguráðherra óskaði aðilunum til hamingju með áfangann og sagði hann ánægjulegan. Fundurinn var haldinn hjá tjónaskoðun VÍS. fréttablaðið/pjetur
Alvarlega slösuðum í umferðarslysum hefur fjölgað töluvert á undanförnum árum. Þannig slösuðust 200 alvarlega í umferðinni í fyrra en aðeins 115 árið 2004. Hins vegar hefur látnum fækkað til muna og létust tólf á síðasta ári samanborið við 31 á árinu 2006. Þetta kemur fram í skýrslu um umferðaröryggisáætlun stjórnvalda árið 2008 sem var kynnt á blaðamannafundi á þriðjudag. Eitt af markmiðum áætlunarinnar er að látnum og alvarlega slösuðum fækki að jafnaði um fimm prósent á ári. Það hefur ekki tekist. „Sjö hafa látist það sem af er þessu ári og er það lítið miðað við árstíma,“ sagði Birgir Hákonarson, framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu. Á árinu 2008 var lögð mikil áhersla á lækkun hraða á vegum landsins og var unnið að því með auknu eftirliti lögreglu, hækkun sekta, áróðri og fræðslu, að sögn Birgis. „Þessir þættir hafa greinilega skilað góðum árangri því mjög hefur dregið úr hraða á vegum landsins,“ segir Birgir. Meðalhraði á hringveginum hefur lækkað úr 96,6 kílómetrum á klukkustund í 93,2 kílómetra á klukkustund. Einnig var umferðareftirliti hrint í framkvæmd vorið 2008. Gefnar voru út 2.805 kærur vegna hraðaksturs. Hraðamyndavélum var fjölgað á árinu og voru 16.125 brot skráð með þeim. Sett var af stað sérstakt eftirlit með efnaakstri og voru 111 ökumenn kærðir fyrir ölvun við akstur og 39 fyrir fíkniefnaakstur á tveggja mánaða tímabili. Undirritun samnings um kaup á búnaði til bíltæknirannsókna var kynnt á fundinum. Lögreglustjórinn á Selfossi, Umferðarstofa, samgönguráðherra og dómsmálaráðherra undirrituðu hann en kaupin nema um sex milljónum króna. Bíltæknirannsóknir eru rannsóknir á ökutækjum eftir bílslys. „Þó að bilanir séu ekki stærsti þátturinn í bílslysum er mikilvægt að rannsaka þær,“ sagði Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rannsóknarnefndar umferðarslysa (RNU), Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra sagði að markmið samningsins væri að lækka þann toll sem umferðarslys tækju.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira