Ólafur Stefánsson stofnar barnaskóla 2. júlí 2009 06:00 Draumur aðstandenda nýs barnaskóla er að hefja starfsemi á Barónsstíg strax næsta haust. Fréttablaði/GVA „
Draumurinn er að byrja í haust," segir Edda Huld Sigurðardóttir sem ásamt Ólafi Stefánssyni handboltamanni, Þorvaldi Þorsteinssyni listamanni og Jennýju Guðrúnu Jónsdóttur kennara ætlar að stofna nýjan grunnskóla í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Edda Huld, sem áður var skólastjóri Ísaksskóla, segir að í nýja skólanum verði áhersla á skapandi skólastarf sem verði verulega frábrugðið hefðbundnu skólastarfi. „Við ætlum að fara aðrar leiðir en viljum ekki ræða þær á meðan málið er ekki lengra komið. Við eigum tíma hjá borgarstjóra á miðvikudag í næstu viku," svarar Edda Huld og vísar til þess að enn hafi ekki verið sótt um tilskilin leyfi fyrir starfrækslu skólans þótt undirbúningur þess sé á lokastigi. Að sögn Eddu Huldar verður nýi skólinn fyrir allan grunnskólaaldur. Fyrst sé þó ætlunin að taka við um sextíu nemendum á aldrinum fimm til tíu ára. Húsnæðið, sem fengið hafi verið á jarðhæð gömlu Heilsuverndarstöðvarinnar, sé nýlega endurnýjað og uppfylli nauðsynlegar kröfur. „Hugmyndir okkar Jennýjar, sem komum úr skólaumhverfinu, fóru mjög vel saman við pælingar Þorvaldar og svo kom Ólafur inn í þetta nýlega," útskýrir Edda Huld samvinnuna við Þorvald og Ólaf. „Við finnum það í hjartanu að þetta er rétt sem við erum að fara af stað með. Við erum mjög ólík en samt sem áður með mjög svipaða hugsun: að mæta barninu þar sem það er statt, opna bara og sjá hvað er þar inni og hvað þarf að fá að njóta sín." Þorvaldur og Ólafur munu koma að skólastarfinu sjálfu. „Þorvaldur verður hjá okkur dags daglega. Ólafur ætlar að spila handbolta í Þýskalandi en mun verða hjá okkur eftir því sem hann hefur tök á." segir Edda Huld Sigurðardóttir.
Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Trump tókst að fella Massie Erlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Erlent Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Sjá meira