Kannast ekki við áhuga á Vaðlaheiði 2. júlí 2009 04:30 kristján möller
Kristján Möller samgönguráðherra segir það einfaldlega rangt að búið sé að forgangsraða samgöngumannvirkjum þannig að Vaðlaheiðargöng verði efst í forgangsröðinni. „Lífeyrissjóðir hafa rætt við mig um fjármögnun ýmissa verkefna, til dæmis Vaðlaheiðarganga og Suðurlandsvegar. Forsvarsmenn lífeyrissjóðsins Stapa og aðrir aðilar komu til mín um áramótin og lýstu áhuga á að fjármagna Vaðlaheiðargöng,“ segir Kristján. Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri Stapa, segir að fjármögnun Vaðlaheiðarganga hafi aldrei verið rædd innan Stapa. „Því hefur aldrei verið lýst yfir af okkar hálfu að við ætlum að koma að þessari fjármögnun.“ Sjálfur tók hann þátt í hópi sem koma átti með hugmynd að mögulegri fjármögnun á göngunum. „Það hafði hins vegar ekkert með það að gera að ég væri framkvæmdastjóri Stapa.“ Sigurður Freysson, stjórnarformaður Stapa, segir þetta aldrei hafa verið rætt innan stjórnarinnar. „Við vitum nákvæmlega ekki neitt um þessi mál annað en það sem ráðherrann segir í fréttum.“ Sveitarstjórnarmenn á Suður-landi héldu fund með samgönguráðherra í gær þar sem skorað var á hann að setja breikkun Suðurlandsvegar í forgang. Kristján sagði í Morgunblaðinu um helgina að gögn vegna Vaðlaheiðargagna væru svo gott sem tilbúin og væri því hægt að ráðast í þá framkvæmd fljótlega. Breikkun Suðurlandsvegar væri komin styttra á leið. Vinna við undirbúning Suðurlandsvegar er í fullum gangi, að sögn Kristjáns, og stefnt er að því að bjóða út fyrsta kaflann, sem nær frá Reykjavík að Litlu Kaffistofunni, sem fyrst. Kristján lofaði á fundi með sveitarstjórnarmönnum á Suðurlandi 25. mars, að verkið yrði boðið út í júní eða júlí, að sögn Sigurðar Inga Jóhannssonar, alþingismanns og oddvita Hrunamannahrepps. „Fundarmenn klöppuðu fyrir honum eftir að hann lofaði þessu en það virðist bara hafa verið kosningablöff.“ Hann segir að það verði að forgangsraða í skipulagsmálum þar sem lítið fé sé til framkvæmda nú. „Vaðlaheiðargöng eru ágætis framkvæmd en við þurfum að ráðast í það sem er mikilvægast,“ segir Sigurður og á þá við breikkun Suðurlandsvegar.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Drengurinn kominn heim til sín Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Sjá meira