Innlent

Danski sjóliðinn fékk skilorðsbundinn dóm

Danski sjóliðinn sem braust inn í Kaupþing í Austurstræti fyrir tveimur kvöldum síðan var dæmdur í 60 daga skilorðsbundð fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Sjóliðinn lést næstum því eftir að hann var handtekinn. Hann fór í hjartastopp en lögreglumaður brást skjótt við og lífgaði sjóliðann við. Hann var í annarlegu ástandi þegar hann var handtekinn. Grunur leikur á að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna.

Maðurinn komst yfir smáræði af íslensku klinki í þjófnaðartilrauninni sem er ekki hátt skrifað skipti maður því til dæmis í danskar krónur.

Ekki er ljóst hvort danski sjóliðinn þurfi einnig að gangast undir danskan herrétt vegna málsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×