Innlent

Tveggja mánaða kvóti klárast á rúmri viku

Kristján Már Unnarsson. skrifar

Fiskistofa áætlar að nýútgefinn strandveiðikvóti Norðvesturlands, sem átti að endast í tvo mánuði, klárist um næstu helgi. Æðisgengið kapphlaup virðist hafið um strandveiðarnar.

Ekki eru nema níu dagar frá því Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra gaf út reglugerð um frjálsar strandveiðar og hefur Fiskistofa nú gefið út 368 leyfi til veiðanna. Þótt bátarnir hafi aðeins getað veitt í fimm virka daga bera aflatölur með sér að mikið kapphlaup sé nú hafið um þann takmarkaða afla sem ætlaður er í strandveiðarnar en það eru tæplega 4.000 tonn.

Menn vita sem er að fyrstur kemur fyrstur fær og að veiðarnar verða stöðvaðar þegar kvótinn er búinn. Þó má hver bátur að hámarki koma með 800 kíló að landi á dag og aðeins fimm daga vikunnar.

Sú ákörðun að deila kvótanum niður á þrjá sumarmánuði og niður á fjögur veiðisvæði virðist ekki duga til að hindra kapphlaupið. Þannig hafa 103 bátar á svæði A, sem nær frá Snæfellsnesi um Vestfirði og að Skagafirði, þegar landað yfir 200 tonnum af slægðum þorski, og eru þó ekki allir byrjaðir veiðarnar.

Svo hratt gengur á kvóta norðvestursvæðisins að Fiskistofa áætlar að heimilaður afli þess fyrir tvo mánuði, júní og júlí, geti klárast um næstu helgi, eftir aðeins tíu veiðidaga. Það þýðir að allir á því svæði verða að leggja árar í bát og bíða þangað til ágústmánuður gengur í garð og hefja þá kapphlaupið á ný um kvóta ágústmánaðar, sem miðað við þessa ákefð gæti klárast á fáum dögum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×