Steingrímur telur að Icesave frumvarpið nái í gegn Heimir Már Pétursson skrifar 12. desember 2009 12:03 Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra býst við að Icesave nái í gegn. Mynd/ Vilhelm.
Fjármálaráðherra býst ekki við andstöðu fleiri þingmanna Vinstri grænna við Icesave frumvarpið og reiknar með að það hljóti stuðning meirihluta Alþingis við lokaafgreiðslu þess. Ef einn stjórnarliði til viðbótar leggst gegn frumvarpinu, þarf stjórnin á stuðningi Þráins Bertelssonar að halda til að frumvarpið verði að lögum. Tveir þingmenn Vinstri Grænna þau Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson greiddu atkvæði gegn aðalgrein Icesave frumvarps ríkisstjórnarinnar í síðustu viku. Þriðji þingmaðurinn, Ásmundur Einar Daðason studdi málið en gerði fyrirvara við þann stuðning þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu. Þráinn Bertelsson þingmaður utan flokka studdi hins vegar frumvarp ríkisstjórnarinnar. Ef Ásmundur Einar leggst gegn frumvarpinu við lokaafgreiðslu þess, þarf ríkisstjórnin á atkvæði Þráins að halda eigi málið ekki að falla í meðförum þingsins. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist vona að vinna fjárlaganefndar að frumvarpinu gangi vel en á ekki von á því að frumvarpið taki miklum breytingum í nefnd. Stjórnarandstaðan krefst þess að farið verði yfir 16 atriði í tengslum við Icesave inni í fjárlaganefnd áður en málið fer til þriðju og síðustu umræðu. Stjórnarliðar stefna hins vegar að því að afgreiða málið út úr nefnd fyrir lok næstu viku og spurning hvort það verði gert í sátt við stjórnarandstöðuna.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira