Nær 200 umsóknir um fjörutíu störf 12. desember 2009 06:15 Á bak við tæplega 180 umsóknir um störf í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu standa 120 lögreglumenn. Sumir sækja um fleiri en eina stöðu af um fjörutíu sem auglýstar hafa verið.
Um 180 umsóknir bárust um fjörutíu stöður sem nýlega voru auglýstar lausar til umsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Á bak við þessar umsóknir eru 120 umsækjendur, því nokkrir sóttu um fleiri en eina stöðu. Að sögn Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, eru nú rúmlega þrjátíu af þeim stöðum sem auglýstar voru lausar til umsóknar, setnar. Menn í þeim hafa verið í tímabundnum ráðningum eða setningum. Að auki er um að ræða sjö til átta stöður til viðbótar. Samtals gera þetta 39 til fjörutíu stöður. „Það er enginn að fela eitt né neitt í þessum efnum,“ segir Stefán, spurður um hvort verið sé að auglýsa stöður sem þegar séu mannaðar, eins og þær séu nýjar, eins og látið er að liggja á vefsíðu Landssambands lögreglumanna. „En það sem við stóðum jafnvel frammi fyrir var það að láta þetta fólk, sem var með tímabundna ráðningu hjá okkur, fara. Við sáum mögulega fram á að endar myndu ekki ná saman. En þær hagræðingaraðgerðir sem við höfum gripið til hafa gert það að verkum að við getum tryggt þessar stöður áfram á næsta ári, sem ekki leit út fyrir um tíma, og meira að segja bætt líka í hópinn til viðbótar.“ Að meginstofni til eru breytingar á skipulagi og vaktkerfi að skila lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu umræddri hagræðingu, að sögn Stefáns, auk annarra breytinga sem greint hefur verið frá í fréttum. „Þessar breytingar skila okkur 150 milljónum upp í þær 225 milljónir sem við þurfum að hagræða um á næsta ári. Langþyngst vega þó vaktkerfisbreytingarnar í þessari hagræðingu og opna fyrir þennan möguleika að halda fólki í störfum. Þetta undirstrikar nauðsyn þess að gera þessar breytingar. Þær eru faglega skynsamlegar og skila fjárhagslegri hagræðingu sem okkur er lífsnauðsynleg.“ Stefán segir einnig spila inn í þetta dæmi að einhverjir lögreglumenn hætti á næsta ári sökum aldurs og af öðrum ástæðum. Gert sé ráð fyrir því í áætlunum að ekki verði ráðið í stað þeirra. Fremur verði yfirmannastöður mannaðar innan úr liðinu. jss@frettabladid.is
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira