Frumvarp um Icesave lagt fyrir Alþingi eftir helgi 27. júní 2009 20:15 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG. Mynd/Daníel Rúnarsson
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, reiknar með því að frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins verði lagt fyrir Alþingi eftir helgi. Hann segir erfitt að bera samkomulagið undir þjóðaratkvæði. Steingrímur hafði vonast eftir að hann myndi ná að leggja frumvarpið fyrir Alþingi í gær en greinargerð og fylgiskjöl hafi ekki verið tilbúin. Hann reiknar með því að málið verði tekið fyrir ríkisstjórn eftir helgi og í framhaldinu á Alþingi.Tjáir sig ekki um orð Ögmundar og Guðfríðar Aðspurður hvort að taugatitrings gæti meðal þingmanna VG um málið segir ráðherrann: „Eðlilega eru menn ekki hrifnir að þessu máli. Þetta er ekki skemmtilegt mál en það þarf að leiða það til lykta." Steingrímur tjáir sig ekki um yfirlýsingar Ögmundar Jónassonar, heilbrigðisráðherra, og Guðfríðar Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformanns VG, um Icesave samkomulagið. „Ég held að það sé best að allir fá öll gögn og skoði málið. Ég treysti á að menn sjái að þetta er besta leiðin sem við eigum út úr þessu," segir Steingrímur. Of flókið til að leggja málið í þjóðaratkvæði Þrettán þingmenn Framsóknarflokks og Borgarahreyfingar vilja að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu eins fljótt og auðið er um hvort staðfesta eigi ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninganna. Steingrímur telur að þetta tiltekna mál sé of snúið til að hægt sé að bera það undir þjóðaratkvæði. Auk þess séu ekki til nein lög um þjóðaratkvæðagreiðslur. Steingrímur segir stjórnvöld bara á samnningum við önnur ríki og því sé erfitt að bera þetta tiltekna mál undir þjóðaratkvæði. „Alþingi fól framkvæmdavaldinu að klára málið. Ég held að það verði að vera ábyrgð framkvæmdavaldsins að leiða málið til lykta," segir ráðherrann. „Þeir sem skópu þennan vanda eru þeir seku í þessu máli en ekki þeir sem eru að reyna að greina úr því," segir Steingrímur og bætir við að það fylgi gríðarleg ábyrgð að hafna ríkisábyrgðinni.
Tengdar fréttir Allt nötrar enn vegna Icesave Enn er alls óvíst hvort ríkisábyrgð vegna Icesave-lánsins verður samþykkt á Alþingi. Til stendur að frumvarpið verði lagt fram í næstu viku. 27. júní 2009 02:00 Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Hitnar undir feldi Péturs Innlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Fleiri fréttir Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Sjá meira
Allt nötrar enn vegna Icesave Enn er alls óvíst hvort ríkisábyrgð vegna Icesave-lánsins verður samþykkt á Alþingi. Til stendur að frumvarpið verði lagt fram í næstu viku. 27. júní 2009 02:00