Þök hafa fokið af húsum á Austfjörðum 20. desember 2009 09:45
Stormur er nú á Austfjörðum og við suðausturströndina og hafa bæði Veðurstofan og Vegagerðin sent út viðvörun. Þök hafa fokið af húsum, bæði á Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði. Vegagerðin segir ekkert ferðaveður víða um suðaustur- og austurströndina og biður vegfarendur að leita sér upplýsinga um færð og veður áður en lagt er af stað. Sérstaklega er varað við óveðri á Fjarðarheiði. Það var þegar um hádegisbil í gær sem björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði kölluð út vegna foks en þakskyggni og þak á íbúðarhúsi í bænum losnuðu auk þess sem rúða brotnaði í öðru húsi vegna veðurs. Þá fauk þak af hlöðu rétt innan við bæinn. Björgunarsveitin Geisli á Fáskrúðsfirði var kölluð út þegar þak fauk í heilu lagi af garðhúsi á Fáskrúðsfirði í gær. Björgunarsveitarmenn á Eskifirði voru einnig kallaðir út um áttaleytið gærkvöldi til aðstoðar fólki í bíl sem hafði farið út af veginum á Hólmahálsi milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar í lélegu skyggni. Fólkið var ómeitt. Austanlands er ófært um Fjarðarheiði og Vatnsskarð eystra. Vegagerðin segir einnig þungfært á Háreksstaðaleið, Fagradal og Oddsskarði en mokstur stendur yfir. Þá er er einnig verið að moka leiðina milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur en þar er þæfingur sem og á Möðrudalsöræfum. Þungfært og stórhríð eru á Breiðdalsheiði og ófært um Öxi. Á Suðausturlandi eru óveður og hálka um Öræfi og Skeiðarársand, frá Lómagnúpi í Kvísker, og eins fyrir Hvalnes.
Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira