Evrópumálið þokast áfram á þingi 30. júní 2009 12:33
Búist er við að tillögur stjórnar og stjórnarandstöðu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu verði sameinaðar í utanríkismálanefnd og komist til seinni umræðu á alþingi á fyrstu dögum júlímánaðar. Nú er einn mánuður og fimm dagar síðan þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu var lögð fram á Alþingi. Þegar tillagan var síðan formlega rædd á alþingi, þremur dögum síðar, lögðu stjórnarandstöðuflokkarnir fram keimlíka tillögu þar sem lagt er til að fela eigi utanríkismálanefnd að undirbúa mögulega umsókn og að alþingi stjórni í raun undirbúningi aðildarviðræðna, en ekki ríkisstjórnin. Strax sama dag lýsti Steingrímur J. Sigfússon því yfir að best væri að bræða saman tillögur stjórnar og stjórnarandstöðu og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur einnig sagt mikilvægt að sameina kjarnann úr báðum tillögum. Eftir snörp orðaskipti í fyrri umræðu á þinginu fór málið inn í utanríkismálanefnd sem hefur á síðustu vikum fundað nær daglega og fengið til sín fjölda gesta. Um eða yfir hundrað athugasemdir hafa verið gerðar við þingsályktunartillögurnar. Nefndin sat á fundi nú fyrir hádegi. Árni Þór Sigurðsson, formaður nefndarinnar, segir stefnt að því að bræða saman þessar tvær tillögur og að þær komi vonandi aftur inn í þingið á fyrstu dögum júlímánaðar. Dómsmálaráðherra Svíþjóðar sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í gær æskilegt að hugsanleg umsókn Íslands bærist sem allra fyrst vilji Íslendingar aðstoð Svía í umsóknarferlinu. Svíar verða í forystu fyrir Evrópusambandið frá fyrsta júlí og út árið.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Sjá meira