Fyrirtæki þingmanna skila ársreikningi illa 30. júní 2009 05:15 Alþingismenn eru í dag tengdir færri fyrirtækjum en fyrir kosningarnar í apríl, en eiga samt hluti í fleiri félögum en áður. Algengast er að þingmenn tengist fyrirtækjum með stjórnarsetu.FRéttablaðið/Vilhelm
Af 52 félögum sem núverandi alþingismenn tengjast eiga 15 enn eftir að skila inn ársreikningi fyrir árið 2007 til ásreikningaskrár. Skilafrestur rann út 31. ágúst 2008. Ofangreint kemur fram í nýrri skýrslu sem Creditinfo Ísland vann fyrir Fréttablaðið um þátttöku þingmanna í atvinnulífinu. Byggir niðurstaðan á skráningu í hlutafélagaskrá og ársreikningum sem skilað er til ársreikningaskrár. Í dag tengjast alþingismenn samtals 52 félögum, ýmist sem eigendur, stjórnarmenn, prókúruhafar eða slíkt. Samkvæmt Creditinfo eru upplýsingarnar ekki tæmandi, ekki sé tekið tillit til stöðu maka þingmannanna, stundum sé ekki upplýst um eignarhald í ársreikningum og þess utan hafi um 20 prósent allra fyrirtækja ekki enn skilað inn ársreikningum. Í tilfelli fyrirtækja sem vitað sé að alþingismenn tengist sé vanskilahlutfallið þó enn hærra en gengur og gerist, eða 29 prósent. „Þingmenn Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar tengjast flestum þessara fyrirtækja, eða fjórum hjá hvorum flokki,“ segir í skýrslu Creditinfo. Creditinfo hefur áður gert sambærilega skýrslu fyrir Fréttablaðið um þátttöku alþingismanna í atvinnulífinu. Fréttir um þá skýrslu birtust í blaðinu í apríl síðastliðnum. Kosið var til Alþingis á milli þess sem skýrslurnar voru gerðar. „Þingmenn eru með þátttöku sinni tengdir 52 fyrirtækjum skráðum í Hlutafélagaskrá. Fyrir rúmlega ári síðan tengdust þingmenn 70 fyrirtækjum með þeim hætti,“ segir Creditinfo sem ekki getur upplýst hvaða þingmenn tengjast hvaða fyrirtækjum vegna synjunar Persónuverndar á slíku. Þótt fyrirtækjum sem þingmenn eru tengdir hafi fækkað eiga þeir hlut í fleiri fyrirtækjum eftir kosningarnar og eignarhluturinn er stærri. Gerðar voru athugasemdir af hálfu Vinstri grænna vegna fyrri skýrslu Creditinfo frá því í apríl. Þeir sögðu sumar upplýsingarnar varðandi þingmenn flokksins vera úreltar og rangar. Höfundar nýrrar skýrslu Creditinfo segja að samkvæmt lögum sé skylt að tilkynna breytingar á stjórnun félaga til hlutafélagaskrár innan eins mánaðar. „Misbrestur á slíku getur valdið sektum eða fangelsi,“ segir Creditinfo og ítrekar að það telji fyrri skýrsluna byggða á réttum gögnum og bendir jafnframt á að þeir sem skráðir séu stjórnarmenn samkvæmt hlutafélagaskrá hafi bæði rétt til að skuldbinda viðkomandi félög og þurfi að sæta refsiábyrgð ef því sé að skipta. „Ákvarðanir um breytingu á stjórn félaga sem teknar eru úti í bæ og öllum huldar hagga ekki slíkri ábyrgð.“
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira