Þarf að endurskoða launamál hjá ríkinu 15. desember 2009 02:15 RÚV „
Við þykjumst sjá dæmi þess að forstöðumönnum stofnana hafi verið hent út í djúpu laugina. Ég held að þeir hafi ekki fengið nægilega þjálfun til að umgangast þennan málaflokk með sömu röggsemi, eða það má kalla það hörku, og viðgekkst áður,“ segir Sveinn Arason ríkisendurskoðandi. Í nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2008 segir að ríkisstofnanir virðist ekki hafa verið nægjanlega vel undir það búnar að taka sjálfstæðar ákvarðanir um launamál starfsmanna sinna. Það hafi verið gagnrýnt að ekki hafi nægjanlega vel verið staðið að því að færa launaákvarðanir úr miðstýrðu kerfi til einstakra stofnana á sínum tíma. Launamál ríkisstarfsmanna fóru alfarið í gegnum Launaskrifstofu ríkisins áður en ákveðið var að færa ábyrgð á rekstri hverrar stofnunar til stjórnenda þeirra. „Við erum að vitna í þetta og hvort ástæða sé til að stíga eitt skref til baka svo að menn séu ekki jafn sjálfráðir og nú er hvað varðar launaþáttinn. Þá er ég alls ekki að segja að horfið verði til fyrra horfs. Ábyrgðin yrði sem áður hjá forstöðumönnum stofnananna,“ segir Sveinn. „Ég held engu síður að það sé nauðsynlegt að þeir hafi aðhald og fái aðstoð sem þekkja launamálin, og ekki síður samningamálin, hvað best.“ Laun eru drjúgur hluti af rekstrarkostnaði hverrar ríkisstofnunar. Ríkisendurskoðun hefur bent á að þess vegna séu laun helsta matarholan þegar kemur að niðurskurði í ríkisrekstri. Áætlaðar launagreiðslur ríkisins samkvæmt fjárlagafrumvarpi árið 2010 eru 119 milljarðar króna af 555 milljarða heildarútgjöldum. Eins og komið hefur fram eru yfirkeyrslur ríkisstofnana fram úr fjárveitingum töluverðar, og hefur vandinn verið viðvarandi undanfarin ár. Sveinn telur að frjálsræði forstöðumanna við launaákvarðanir séu hluti af þeim vanda. Ríkisendurskoðun hvetur í skýrslu sinni til að launamálin, sem svo mikla þýðingu hafa fyrir útgjöld ríkisins, verði tekin til endurmats með hliðsjón af þeirri reynslu sem komin er á launamál í meðförum einstakra ríkisstofnana á undanförnum árum. Í heild er niðurstaða skýrslunnar að mikið ógagnsæi sé í launamálum ríkisins, og kemur þar til fyrirkomulag á yfirvinnu- og aukagreiðslum. svavar@frettabladid.is Háskóli Íslands
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Sjá meira