Enginn sparnaður í niðurskurði 15. desember 2009 02:00 Þórarinn Tyrfingsson „
Það verður að finna aðrar leiðir til að spara en að skera niður framlög til áfengissjúklinga,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ, um boðaðan 70 milljóna niðurskurð til samtakanna. „Enginn sparnaður er í að rústa áfengismeðferð, vandinn gufar ekki upp og það er ljóst að þeir sem eiga við vandamál að stríða munu lenda á bráðadeild og öðrum deildum spítalans, róstur munu aukast á heimilum og svo framvegis.“ Þórarinn segir framlög til SÁÁ hafa sætt það miklum niðurskurði á árinu að frekari niðurskurður muni skerða þjónustu verulega, færri muni komast í meðferð en fyrr. Tuttugu þúsund manns hafa ritað undir áskorun til þingmanna um að skera ekki framlög til samtakanna. Að mati Þórarins sýnir fjöldinn mikinn stuðning þjóðarinnar við störf SÁÁ sem rekur sjúkrahúsið Vog auk göngudeilda í Reykjavík og á Akureyri og áfangaheimili í Reykjavík. Til að vekja athygli á málinu standa samtökin fyrir uppákomu á Austurvelli í dag klukkan fimm, Bubbi og Páll Óskar munu syngja og verður kveikt á kertum „sem þakklætisvott fyrir þau líf sem starfsemi SÁÁ hefur bjargað og bætt“, eins og segir á heimasíðu samtakanna. Landsmenn eru hvattir til að mæta og sýna samstöðu með baráttu samtakanna gegn áfengis- og fíkniefnavanda. - sbt
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Fleiri fréttir Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku Sjá meira