Skattleggjum okkur ekki útúr kreppunni 15. desember 2009 12:32 Hanna Birna Kristjánsdóttir. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, segir að íslenskt samfélag muni ekki skattleggja sig út úr kreppunni. Síðari umræða um frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 fer fram í borgarstjórn í dag. „Við verðum að fara sömu leið og heimili og fyrirtæki landsins, forgangsraða í þágu þess sem mestu skiptir, hagræða og spara. Við verðum að ýta undir dugnaðinn og metnaðinn sem einkennir þjóðarsálina. Hvetja til atvinnusköpunar og standa þannig vörð um tekjugrundvöll fjölskyldna og fyrirtækja og tryggja að íbúar þessarar borgar njóti góðrar grunnþjónustu," sagði Hanna Birna í ræðu sinni í borgarstjórn að fram kemur í tilkynningu Reykjavíkurborgar. Hanna Birna kynnti breytingatillögur meirihlutans við fjárhagsáætlun borgarinnar. Í tilkynningunni segir að borgin forgangsraði í þágu barna og velferðar án þess að hækka skatta eða gjöld á grunnþjónustu. Áætlað er að liðurinn fjárhagsaðstoð muni hækka úr 1,6 milljarði króna samkvæmt útkomuspá 2009 í rúma 2 milljarða. Lagt er til að 142 milljónir króna verði varið til að hækka hámarksfjárhæð fjárhagsaðstoðar í samræmi við verðlagsbreytingar síðustu 12 mánaða. Í máli borgarstjóra kom fram að ákvörðun var tekin um að fjárhagsaðstoð og húsaleigubætur séu bundnir liðir þannig að reynist áætluð útgjöld of lág þá mun borgarsjóður engu að síður greiða það sem upp á vantar. „Þannig á enginn velkjast í vafa um að við munum standa við bakið á almenningi í borginni sem á rétt á þessum stuðningi," sagði Hanna Birna.
Tengdar fréttir Síðari umræða um fjárhagáætlun borgarinnar Síðari umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 fer fram á fundi borgarstjórnar í dag. Áætlunin var lögð fram í byrjun mánaðarins en til stendur að spara yfir þrjá milljarða króna. Í áætluninni er gert ráð áframhaldandi samdrætti í tekjum borgarinnar. Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks segir að honum verði mætt með hagræðingu í stjórnsýslu og rekstri, en skattar og gjöld fyrir grunnþjónustu verði ekki hækkuð. Fundur borgarstjórnar hefst klukkan tíu. 15. desember 2009 09:17 Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Fleiri fréttir „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Sjá meira
Síðari umræða um fjárhagáætlun borgarinnar Síðari umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 fer fram á fundi borgarstjórnar í dag. Áætlunin var lögð fram í byrjun mánaðarins en til stendur að spara yfir þrjá milljarða króna. Í áætluninni er gert ráð áframhaldandi samdrætti í tekjum borgarinnar. Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks segir að honum verði mætt með hagræðingu í stjórnsýslu og rekstri, en skattar og gjöld fyrir grunnþjónustu verði ekki hækkuð. Fundur borgarstjórnar hefst klukkan tíu. 15. desember 2009 09:17