Ungir Framsóknarmenn í Kópavogi: Vilja að Gunnar afsali sér biðlaunarétti 23. júní 2009 16:33 Gunnar Ingi Birgisson.
Ungir Framsóknarmenn í Kópavogi hvetja Gunnar I. Birgisson til að segja af sér sem bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Jafnframt hvetur félagið hann til þess að afsala sér biðlaunarétti bæjarstjóra og því fé verði varið til aðstoðar ungu barnafólki í Kópavogi með lækkun á leikskólagjöldum eða öðrum gjöldum. Þetta kemur fram í áskorun sem Ungir Framsóknarmenn í Kópavogi senda Gunnari I. Birgissyni í dag. Í áskoruninni segir að síðustu vikur hafi verið stormasamar í samstarfi Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Tvö hneyklismál hafi komið upp með skömmum fyrirvara, annars vegar viðskipti bæjarins við Frjálsa Miðlun ehf., sem er fyrirtæki í eigu dótturs Gunnars og hins vegar mál lífeyrissjóðs starfsmanna kópavogs (LSK) þar sem Gunnar beri höfuð ábyrgð, enda stjórnarformaður sjóðsins. Þá segir að trúnaðarbrestur Gunnars og framkvæmdastjóra sjóðsins við meðstjórnendur sé slíkur að fáheyrt sé að menn komist upp með slík vinnubrögð. „Auk þessa á ennþá á eftir að rannsaka mál Klæðningar, þar sem skýr tengsl eru á milli Gunnars og Klæðningar og viljum við hvetja bæjarráð til að fara fram á óháða rannsókn á þeim málum. Í ljósi þess er ekki að undra þó að framsóknarmenn vilji almennt ekki samstarf í óbreyttri mynd. Þess ber þó að hafa í huga að þessir tveir flokkar hafa átt í góðu samstarfi í 19 ár. Í gær samþykkti svo fulltrúaráð Framsóknarflokksins að reyna að bjarga samstarfinu með neðangreindum skilyrðum. Skilyrði framsóknarmanna fyrir áframhaldandi meirihlutasamstarfi: Fundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Kópavogi haldinn 22. júní 2009 samþykkti að halda áfram meirihlutasamstarfi með Sjálfstæðisflokknum að gefnum eftirfarandi skilyrðum: 1) Sjálfstæðismenn tilnefni nýjan bæjarstjóra úr röðum bæjarfulltrúa sem taki við starfi bæjarstjóra og gegni því út kjörtímabilið. 2) Það að Gunnar I. Birgisson segi sig frá starfi bæjarfulltrúa meðan á lögreglurannsókn stendur er í fullri sátt við Framsóknarfélögin í Kópavogi en ekki að þeirra kröfu. Kjósi Gunnar I. Birgisson að snúa aftur sem bæjarfulltrúi þarf að semja um samstarf flokkana að nýju. 3) Þessi ákvæði taki gildi miðvikudaginn 24. júní 2009." Í síðustu viku hvöttum við félaga okkar til að slíta samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Það var gert í þeirri trú að sjálfstæðismenn myndu aldrei setja Gunnar af sem bæjarstjóra. Annað hefur nú komið á daginn sem gefur von um að samstarfið geti haldið. Ungir Framsóknarmenn í Kópavogi vilja því hvetja Gunnar I. Birgisson til að sjá sóma sinn í því að segja af sér sem bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Jafnframt viljum við hvetja hann til að afsala sér biðlaunarétti bæjarstjóra og því fé verði varið til aðstoðar ungu barnafólki í Kópavogi með lækkun á leikskólagjöldum eða öðrum gjöldum. Slík aðgerð myndi auka traust á áframhaldandi samstarfi flokkanna og koma á friði í bæjarpólitíkinni. Verði hann ekki af þessari áskorun er vandséð með áframhaldandi stuðning okkar við samstarfið miðað við þau orð sem hafa komið frá bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna þar sem Gunnsteinn er ósáttur við tillögu Framsóknar," segir í áskoruninni.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Sjá meira