Kínverjar sýna kjarnavopnin Atli Steinn Guðmundsson skrifar 3. september 2009 08:26 Eldflaug til sýnis á herminjasafninu í Peking.
Kínverjar munu sýna kjarnavopn sín opinberlega á 60 ára afmæli Kommúnistaflokksins í haust. Flokksafmælið verður 1. október og verður þá mikið um dýrðir í Peking. Heljarmikil hersýning er meðal annars á dagskránni og verða kjarnorkuflaugar úr vopnabúri alþýðuhersins til sýnis. Flaugarnar eru hannaðar og framleiddar af Kínverjum og verður langdræg eldflaug, sem hægt er að skjóta milli heimsálfa, einn gripanna á sýningunni. Flaugarnar eru af annarri kynslóð kínverskra kjarnavopna en heimildamaður innan hersins segir ekki langt í að þriðja kynslóðin líti dagsins ljós en þá muni Kínverjar standa jafnfætis Bandaríkjamönnum og Rússum hvað tæknihliðina snerti. Vopnasýningunni fylgir 200.000 manna skrúðganga auk þess sem helstu fyrirmenn Kommúnistaflokksins munu heilsa upp á sauðsvartan pupulinn. Það er kannski eins gott að Kínverjar dusti rykið af vopnabúri sínu á afmælinu þar sem líklegt þykir að þeim verði boðið að taka þátt í miklum heræfingum á Kyrrahafinu með Áströlum og Bandaríkjamönnum síðar á árinu.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira