Hælisleitendurnir farnir til Bagdad 3. september 2009 05:00 Lögreglan í Brorsons-kirkju. Aðgerðir lögreglunnar 13. ágúst síðastliðinn vöktu hörð viðbrögð í Danmörku.nordicphotos/AFP
Hópur íraskra flóttamanna var sendur heim til Íraks frá Danmörku í gær, þrátt fyrir að óvissa ríkti um örlög þeirra þar. Írakarnir voru handteknir fyrir þremur vikum í Brorsons-kirkju í Kaupmannahöfn, þar sem þeir höfðu leitað hælis. Alls voru 22 Írakar sendir heim í gær; 21 karl og ein kona. Samtals höfðu um sjötíu flóttamenn frá Írak dvalist í kirkjunni um þriggja mánaða skeið, en meirihluta þeirra tókst að komast hjá handtöku. Meðal þeirra sem lögreglan hafði ekki hendur í hári á var ungur maður, Ali Nayef, sem á barn hér á landi með íslenskri konu. Fyrir tilviljun var hann ekki staddur í kirkjunni þegar lögreglan gerði áhlaup. Hann hefur verið í felum síðan. Hópurinn fór um borð í flugvél í Óðinsvéum beina leið til Bagdad. Írösku flóttamönnunum hafði verið neitað um hæli í Danmörku, en hafði engu að síður ekki verið vísað úr landi vegna óvissunnar sem beið þeirra í Írak. Í vor gerðu síðan dönsk og írösk stjórnvöld samning, sem gerði dönsku stjórninni kleift að senda til Íraks þá hælisleitendur sem ekki höfðu fengið dvalarleyfi í Danmörku. Eftir það leituðu flóttamennirnir hælis í kirkjunni og vonuðust til að fá að vera þar í friði. Hinn 13. ágúst réðst lögreglan síðan inn í kirkjuna og handtók alla íraska flóttamenn sem þar fundust. Þessi aðgerð lögreglunnar vakti hörð viðbrögð í Danmörku. Strax sama daginn komu tólf þúsund manns saman í Kaupmannahöfn til að mótmæla brottsendingu flóttamannanna. Lögreglan var sökuð um hörku. „Það er gjörsamlega ómannlegt að senda fólk heim þar sem óvissan ein bíður þess,“ sagði Rosa Lund, hjá samtökum sem hafa veitt írösku hælisleitendunum aðstoð. Dönsk stjórnvöld segjast hins vegar hafa farið rétt að öllu. Birthe Rønn Hornbech, ráðherra innflytjendamála, segir að þessum hópi Íraka hafi verið neitað um hæli vegna þess að þeir sæti ekki persónulegum ofsóknum í Írak. Hún hvetur þá úr hópnum sem enn eru í Danmörku til þess að fara úr landi. Lög um innflytjendur voru hert mjög í Danmörku árið 2002. Síðan þá er engum veitt hæli nema vera viðurkenndur flóttamaður samkvæmt Genfarsáttmála um flóttamenn, þar sem segir að flóttamenn teljist þeir sem sæti ofsóknum í heimalandi sínu vegna kynþáttar, trúar eða stjórnmálaskoðana. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira