Andlit Iceland keðjunnar rekið eftir kókaínhneyksli 17. ágúst 2009 19:56 Kerry Katona er ólíkindatól.
Vandræðagemsinn Kerry Katona, sem áður var í hljómsveitinni Atomic Kitten, hefur verið rekin sem andlit Iceland verslunarkeðjunnar í Bretlandi eftir kókaínhneyksli. Þetta kemur fram á fréttavef Sky. Iceland keðjan var áður í eigu Baugs en nú eru skilanefndir Landsbankans og Glitnis stærstu hluthafarnir. Birtar voru ljósmyndir og myndband af hinni 28 ára gömlu Kerry þar sem saug hvítt efni upp í nefið að heimili sínu í Wilmslow í Cheshire á Englandi. Á myndbandinu er Kerry í sömu fötum og hún var í þegar hún sótti börnin sín, þremur og hálfum tímum áður en myndbandið er tekið upp. Í yfirlýsingu frá Iceland keðjunni kemur fram að þó fyrirtækið hafi staðið með Kerry áður þegar hún lenti í vandræðum með einkalífið þá sé ómögulegt að hún haldi starfi sínu eftir þetta hneyksli. Kerry hefur verið andlit Iceland keðjunnar í fjögur ár. Í langan tíma hefur hún háð barátta hennar við vín og eiturlyf, sem og skrautlegt ástarlíf, verið milli tanna fólks. Í yfirlýsingunni frá Iceland segir: „Lengst af hefur Kerry verið mikilvægur þáttur í auglýsingaherferðum okkar. En hún hefur einnig glímt við vandamál í einkalífinu. Við höfum alltaf stutt hana í þeim erfiðleikjum sem fylgja því að sinna hlutverki móður sem er í sviðsljósinu, en erfitt getur verið að sinna báðum hlutverkum. Hvað sem því líður, þá eru nýjustu ásakanirnar á hendur Kerry þess efnis, að við teljum ómögulegt að halda samstarfinu áfram. Við munum engu að síður halda áfram að aðstoða Kerry við að ná tökum á lífi sínu - óski hún eftir því." Kerry vann hug og hjörtu Breta árið 2004, eftir að hún var hætt í Atomic Kitten. Þá tók hún þátt í raunveruleikaþættinum „I'm A Celebrity... Get Me Out of Here" Ar sem hún át pöddur og tókst á við aðrar áskoranir frumskógarlífs. Ári síðar samning upp á hundruði þúsunda punda við Iceland keðjuna. Þessar miklu tekjur Kerry dugðu þó ekki til þegar Skattmann bankaði uppá hjá henni. Í ágúst í fyrra var hún dæmd gjaldþrota eftir að hafa sleppt því að greiða rúmlega 400 þúsund punda í skatt. Kerry var gift söngvaranum og fyrrum Westlife meðlimnum, Bryan McFadden en þau eru skilin. Nú á hún í stormasömu sambandi Mark nokkurn Croft. Kerry á fjögur börn og var kosin Besta fræga mamman tvö ár í röð, árin 2004 og 2005 - þrátt fyrir að hafa reykt og drukkið á meðgöngunni. Hægt er að sjá myndbandið og umfjöllun News of the world hér.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent Fleiri fréttir Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Sjá meira