Vínarljóð og forleikir 5. janúar 2009 03:00 Dísella Lárusdóttir verður stjarnan á Vínartónleikum Sinfóníunnar í ár. Hér er hún að syngja í Eurovision-keppninni 2006. Fréttablaðið/Daníel
Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands halda áfram að vera eitt vinsælasta fyrirbrigðið á efnisskrá hljómsveitarinnar. Ekki þarf færri en fjóra tónleika til að svara eftirspurn og verða þeir þann 7., 8., 9., og 10. janúar. Þá mun hljómsveitin bregða sér í huganum suður til Vínarborgar og leika sígrænar perlur eftir Strauss, Lehár og fleiri ódauðlega meistara óperettusmíða, m.a. úr Leðurblökunni og Kátu ekkjunni. Stjórnandi er Markus Poschner sem er einn aðalstjórnenda við Komische Oper í Berlin. Einsöngvari er Dísella Lárusdóttir sem hefur vakið verðskuldaða athygli á síðustu árum. Dísella mun syngja nokkur vinsælustu lög þessa tímabundna forms söngleikjanna: Dein ist mein ganzes Herz úr Brosandi landi eftir Lehar, og hið fræga Vilja-Lied eftir hann úr Kátu ekkjunni meðal annars. Eftir Johann Strauss hljómar Accelerationen-valsinn, forleikir að Leðurblökunni og Sígaunabaróninum en að loknum stykkjum og sönglögum eftir þá Straussara bregður hljómsveitin sér til í tíma og flytur forleik Bernstein að Candide og Disella syngur Glitter and be gay úr sama verki. Dísella Lárusdóttir á ekki að langt að sækja tónlistargáfurnar: bæði faðir hennar og Þorvaldur afi hennar sátu lengst starfsævi sinnar á bekkjum Sinfóníunnar og móðir hennar Sigríður Þorvaldsdóttir var dáð söngleikjaleikkona á sínum bestu árum í Þjóðleikhúsinu. Dísella hefur vakið mikla athygli fyrir söng sinn og glæsilega framkomu. Hún komst í úrslit Metropolitan-söngkeppninnar 2007 og var í kjölfarið boðið að syngja þar í óperu eftir Philip Glass. Hún hefur fengið mikið lof vestanhafs, þar sem hún býr, fyrir söng sinn og verður gaman að sjá hana takast á við hinar sígildu perlur óperettunnar. Til stóð að hún tæki þátt í sviðsetningu óperunnar íslensku á verkefni vorsins en því hefur verið frestað svo enn verða íslenskir óperuaðdáendur að bíða eftir að sjá hana í leik- og sönghlutverki á sviði.
Mest lesið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Próteinskammtur alltaf með í töskunni Lífið samstarf Fleiri fréttir Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Sjá meira