Berlusconi blóðugur á nýju veggspjaldi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. desember 2009 08:03 Berlusconi, rétt eftir árásina.
Silvio Berlusconi hefur fundið not fyrir fréttamyndir sem teknar voru af honum alblóðugum eftir líkamsárásina fyrr í mánuðinum. Forsætisráðherrann ítalski missti tvær tennur auk þess sem nef hann brákaðist þegar óður maður grýtti styttu í andlit hans þar sem hann var á leið út af fundi hjá stjórnmálaflokki sínum, Frelsisflokknum, sem varð til við sameiningu Forza Italia og ítalska þjóðarflokksins í mars. Myndir af Berlusconi, blóði drifnum, munu nú prýða veggspjöld nýjustu auglýsingaherferðar flokksins, vafalítið sem tákn um baráttuanda hans í þágu þjóðar sinnar sem margir hafa nú reyndar gefið fremur lítið fyrir en skattsvik og fleira skrautlegt hefur einkennt umfjöllun um forsætisráðherrann meira upp á síðkastið en ötult stjórnmálastarf hans. Í samvinnu við almannatengslaráðgjafa sína hefur auglýsingaspjaldið nú verið framleitt í þúsundum eintaka með slagorðinu „Ástin sigrar ætíð hatrið" og ætlar Berlusconi sér ekki minna en að ná einni milljón nýrra félaga í Frelsisflokkinn og rúlla upp kosningunum í vor. Reyndar gæti hann farið langt með það þar sem kannanir sýna að fylgi hans jókst um þrjú prósentustig eftir líkamsárásina á dögunum.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira