Obama sækir verðlaunin en móðgar Norðmenn Atli Steinn Guðmundsson skrifar 10. desember 2009 08:22
Barack Obama Bandaríkjaforseti kom til Óslóar fyrir stundu til þess að taka við Friðarverðlaunum Nóbels, sem eru 1,4 milljónir dollara, gullpeningur og heiðursskjal. Forsetinn stoppar í 26 klukkustundir í Ósló. Hann byrjar á að hitta konungshjónin en sækir svo verðlaunaathöfnina sem er síðdegis. Gríðarleg öryggisgæsla er í borginni með þátttöku á þriðja þúsund lögreglumanna. Herþyrlur eru á sveimi, víða eru vegatálmar og er áætlaður kostnaður vegna gæslunnar um tveir milljarðar íslenskra króna. Obama hefur þegar stytt viðdvöl sína í Noregi og aflýst þátttöku í ýmsum viðburðum og taka margir Norðmenn því sem móðgun, jafnvel móðgun við Nóbelsverðlaunin sjálf. Talsmenn forsetans segja hins vegar að hann sé mjög önnum kafinn, meðal annars vegna loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn en þangað fer Obama frá Ósló. Víða hafa heyrst gagnrýnisraddir um að þjóðhöfðingi sem á í stríði í tveimur löndum taki við friðarverðlaunum. Þá hafa aldrei færri Bandaríkjamenn stutt Obama en stuðningur við hann, samkvæmt síðustu könnunum, mælist slétt 50 prósent.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira