Gunnar: FME á að sinna brýnni verkefnum 20. júní 2009 18:46
Það er ekki mikið að gera hjá Fjármálaeftirlitinu ef þeir eru að vegast í hlutum sem þessum segir Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Stjórnmálafræðingur telur að bæjarfulltrúarnir sem sátu í stjórn fari í tímabundið leyfi. Gunnar I. Birgisson, fráfarandi bæjarstjóri er formaður stjórnarinnar. Ómar Stefánsson situr í stjórninni fyrir hönd Framsóknarflokks og Flosi Eiríksson fyrir Samfylkinguna. Trúnaðarbrestur varð milli Fjármálaeftirlitsins og stjórnar lífeyrissjóðsins en hún er sökuð um að hafa beitt blekkingum og gefa Fjármálaeftirlitinu rangar upplýsingar um lánveitingar sjóðsins, meðal annars til Kópavogsbæjar. Lánveitingarnar námu um 600 milljónum króna þegar mest lét og fóru þær allt upp í tuttugu prósent eigin fé sjóðsins en leyfilegt hámark er tíu prósent. Eftir að ítrekuðum kröfum FME um úrbætur var ekki sinnt kærði eftirlitið starfshætti stjórnarinnar til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. Brot af þessu tagi geta varðað háum sektum og allt að tveggja ára fangelsi. Birgir Hermannsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst, telur að þeim bæjarfulltrúum sem áttu sæti í stjórn lífeyrissjóðsins sé ekki stætt á því að sitja áfram og eigi að fara í tímabundið leyfi. Gunnar Birgisson sagði í samtali við fréttastofu í dag að bæjarfulltrúarnir hafi ekki íhugað að segja af sér. Það sé greinilega ekki mikið að gera hjá Fjármálaeftirlitinu fyrst þeir séu að vegast í hlutum sem þessum. Þeir ættu að sinna brýnni verkefnum en þessu. Stjórnin hafi aðeins verið að gæta hagsmuna sjóðsins. Gunnar sagði að lánveiting væri tvískipt. Annars vegar væri skuldabréf upp á 260 milljónir sem hefði hækkað vegna verðbóta og þar með farið yfir leyfileg mörk og hins vegar skammtímalán upp á 300 milljónir. Í því tilviki væri um víxil að ræða. Vextirnir hefðu verið á bilinu 17 til 18% og gerðust ekki betri.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Fleiri fréttir Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Sjá meira