Safnaðar skuldir sem vinna á upp 7. júlí 2009 05:00 Skólinn er í langverstri stöðu og er gert ráð fyrir 265 milljón króna uppsöfnuðum halla í árslok. fréttablaðið/hörður
Tíu af tólf stofnunum sem standa illa, samkvæmt nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar, heyra undir menntamálaráðuneytið. Laga þarf vandann strax samkvæmt skýrslunni. Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) er í verstri stöðu og er gert ráð fyrir 265 milljóna króna uppsöfnuðum halla í árslok, eða um 47,7 prósent af fjárheimild. Ágúst Sigurðsson, rektor LBHÍ, segir hallann fortíðarvanda. Lagfæra hafi átt hallann í síðustu fjárlögum. Staðan sé hins vegar mun betri í ár. „Í maí á þessu ári vorum við innan rekstraráætlunar." Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri Háskólans á Akureyri, segir ekkert benda til annars en að staðið verði við rekstraráætlanir. Gert sé ráð fyrir að uppsafnaður halli verði um 89 milljónir, um 6,5 prósent af fjárheimild. Uppsafnaður halli Árnastofnunar verður sautján milljónir króna í árslok, um 5,9 prósent af fjárheimild, samkvæmt skýrslunni. Þórunn Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Árnastofnunar, segir skýringuna vera oftaldar tekjur. Við sameiningu fimm stofnana í Árnastofnun árið 2006 varð Fjársýslu ríkisins á mistök, samkvæmt Þórunni og oftaldi tekjur um sextán milljónir. Þau mistök voru leiðrétt í mars 2008. Aftur voru tekjur oftaldar árið 2008 um rúmar fjórar milljónir, að sögn Þórunnar. Sigtryggur Magnason, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segir þessar stofnanir eiga það sammerkt að þær eigi uppsafnaðar skuldir sem verið sé að vinna upp.
Mest lesið Stúlkan fannst heil á húfi Innlent Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Sjá meira