Segja þóknun til MP 25 milljónum of háa 7. júlí 2009 05:15 Ráðhúsið í Reykjavík.
Reykjavíkurborg samdi við MP banka um að borga fyrirtækinu 42,5 milljónir króna fyrir umsjón með fimm milljarða króna lántöku borgarinnar hjá lífeyrissjóðum þrátt fyrir að fyrirtækið Virðing hafi boðist til að vinna verkið fyrir aðeins 17,5 milljónir. Þetta fullyrða fulltrúar minnihlutans í borgarráði. Í fyrirspurn frá borgarráðsfulltrúum Vinstri grænna og Samfylkingar segir að í desember síðastliðnum hafi verið samið við MP banka um skuldabréfaútboð sem síðan hafi ekki gengið upp. Í framhaldinu hafi verið reynt að semja beint við lífeyrissjóðina í gegnum verðbréfafyrirtækið Virðingu en það hafi heldur ekki gengið eftir því sjóðirnir hafi viljað veð til tryggingar lánunum. Virðing var stofnað af Sameinaða lífeyrissjóðnum og lífeyrissjóðnum Lífiðn. „Hins vegar hafi sömu lífeyrissjóðir verið tilbúnir að aflétta þeirri kröfu með milligöngu MP banka. Það hefur enn fremur verið upplýst að MP banki fékk 42,5 milljónir í þóknun fyrir verkið en Virðing hafi boðist til að taka 17,5 fyrir sömu þjónustu,“ segir í fyrirspurninni. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarráðsfulltrúi VG, segir það hafa verið mjög óeðlilegt af hálfu opinberra lífeyrissjóða að setja borgina í þá stöðu að geta ekki samið beint um lánið með aðstoð Virðingar nema gegn veði en að í gegnum einkabanka hafi síðan verið fallið frá þeirri kröfu. „MP banki kom aftur inn í málið og á mjög skömmum tíma afléttu lífeyrissjóðirnir kröfu um veðið. Eins og ég skil þetta notaði MP banki þá vinnu sem Virðing var búin að vinna. Þetta er bara einn samningur í raun og veru sem MP kláraði og fær þessar 42,5 milljónir fyrir. Þetta er allt mjög skrítið og lyktar ekki vel,“ segir Þorleifur, sem telur að bjóða hefði átt verkið út og að þóknunin hafi verið allt of há. „Mér er sagt að þetta hafi verið hálfs dags vinna hjá reyndum miðlara en þótt það hafi verið hálf vika eða jafnvel hálft ár þá eru þetta átta ára laun kennara,“ segir borgarfulltrúinn. Friðjón Rúnar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Virðingar, er í sumarfríi og ekki náðist í staðgengil hans í gær. Friðrik Einarsson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs MP banka, segir bankanum ekki heimilt að veita upplýsingar um samning sinn við Reykjavíkurborg fremur en aðra viðskiptaaðila fyrirtækisins. Það sé borgaryfirvalda að ákveða slíka upplýsingagjöf. Hjá fjármálaskrifstofu borgarinnar fengust þau svör að fyrirspurninni yrði svarað á fundi borgarráðs 16. júlí næstkomandi.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira