Slökkvilið kvíðir umferðarþunga að HR 7. júlí 2009 02:30 háskólinn í reykjavík Byggingin er komin langt á leið og verður tilbúin í desember, að sögn Þorkels Sigurlaugssonar. Starfsemin flytur um áramótin.fréttablaðið/valli
Umferð um Bústaðaveg mun aukast töluvert þegar Háskólinn í Reykjavík tekur til starfa í Vatnsmýrinni. Um 2.500 nemendur og kennarar flytjast yfir í nýja húsnæðið um áramótin. Reynt verður að bjóða út Hlíðarfótinn, veginn frá Hringbraut að Hótel Loftleiðum, sem fyrst til að vinna bug á vandamálinu. „Við höfum áhyggjur af þessu og höfum verið í samstarfi við Reykjavíkurborg um hvernig best er að leysa þetta,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu. Útkallsþjónusta Slökkviliðsins er í Skógarhlíð, við Bústaðaveg, og við flutning HR gæti slökkviþjónusta tafist. „Við höfum líka spáð í það hvort ekki væri sniðugra að hafa útkallsþjónustuna annars staðar því við erum svolítið innikróuð og höfum verið lengi. Það væri æskilegra að vera nær stofnbraut og nú er líklega meiri þörf á að leggjast í greiningarvinnu um hver besta staðsetningin er,“ segir Jón Viðar. Hins vegar tekur að sögn hans langan tíma að vinna að breyttri staðsetningu og því er verið að reyna að finna bestu lausnina í núverandi ástandi. Unnið er að því að bæta samgöngur við Vatnsmýrina vegna komu HR. Verið er að breikka Flugvallarveg, sem er varanleg framkvæmd. Einnig verður ráðist í bráðabirgðaveg frá Hringbraut að Hótel Loftleiðum sem jafnan kallast Hlíðarfótur. „Reynt verður að bjóða Hlíðarfótinn út sem fyrst en við vitum ekki nákvæmlega hvenær það verður,“ segir Kristín Einarsdóttir, aðstoðarsviðsstjóri framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar. Hlíðarfóturinn verður tilbúinn um það leyti sem HR kemur inn í húsið, að sögn Kristínar. Flytja á tækni- og verkfræði-, tölvunarfræði- og viðskiptadeild HR úr öðru húsnæði yfir í Vatnsmýrina um áramótin. Þetta eru um 70 prósent af starfsemi skólans, um 2.300 nemendur og 200 kennarar og annað starfsfólk. Restin af starfseminni flytur í húsið haustið 2010. „Við erum ekki hrædd við umferðarteppur þegar Hlíðarfóturinn kemur svo þetta ætti að vera í lagi,“ segir Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá HR. HR mun aðlaga sig að aðstæðum til að dreifa álaginu, að sögn Þorkels. Til dæmis gæti hugsast að deildir byrji á mismunandi tímum á morgnana til að dreifa umferðarálaginu.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira