Innbrotsþjófar styðjast við Facebook Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. ágúst 2009 08:19
Tryggingafélag í Bretlandi varar við því að innbrotsþjófar séu nú farnir að safna upplýsingum um væntanleg fórnarlömb af vefjum á borð við Facebook og Twitter. Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú segir vinum þínum á samskiptavefjunum Facebook eða Twitter frá því að þú sért á leið í frí utan heimilisins eða hafir verið að kaupa þér glæný hljómflutningstæki. Það eru nefnilega fleiri en vinir þínir sem hafa tök á að kynna sér þessar upplýsingar, segja talsmenn tryggingafélagsins Legal & General í Bretlandi. Ný skýrsla félagsins, sem ber titilinn Hinn stafræni skúrkur, eða „The Digital Criminal", leiðir í ljós að þeir sem fólk telur til svokallaðra vina á Facebook og hefur viðurkennt sem slíka reynast oft hin mestu varmenni enda gjarnan fólk sem notandinn þekkir lítið eða ekkert til. Í 13 prósentum tilvika viðurkenna Facebook-verjar fólk sem biður um að teljast vinir þeirra án þess að hafa hugmynd um hver þar er á ferð. Enn uggvænlegri er sú staðreynd að 38 prósent notenda Facebook segja þar frá væntanlegum ferðalögum og 64 prósent fólks á aldrinum 16 - 24 ára birta ferðaáætlun í smáatriðum á vefnum áður en lagt er á stað. Hverjum er ekki nákvæmlega sama um hvar þú ætlar að vera í hádeginu næsta miðvikudag í sumarfríinu þínu? Foreldrum þínum kannski en líka óprúttnum aðilum sem hafa í hyggju að vera heima hjá þér þegar þú ert þar ekki. Þetta segja bæði Legal & General og Michael Fraser, fyrrum innbrotsþjófur sem komið hefur fram í þáttum BBC, Þrykkjum þjófinn eða „Beat the Burglar".
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Fleiri fréttir Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Sjá meira