Stefnt að hallalausum Landspítala 26. júní 2009 16:32 Landspítali
Stefnt er að hallalausum rekstri Landspítala í árslok þrátt fyrir umtalsverða hagræðingarkröfu á árinu sem nemur um 2800 milljónum króna frá rekstri síðasta árs. Staða og þróun íslensku krónunnar gerir hins vegar það verkefni afar erfitt. Á spítalanum hefur verið gripið til margháttaðra hagræðingaraðgerða sem m.a. lúta að skilvirkara stjórnskipulagi, breyttu vaktafyrirkomulagi hjá starfsfólki, sparnaði í innkaupum og ódýrari stoðþjónustu. Staðfastlega er reynt að standa við það markmið að skerða ekki þjónustu spítalans við sjúklinga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. Þá segir að á árinu 2008 hafi verið halli á rekstri sjúkrahússins að fjárhæð 1.185 milljónir króna. „Reksturinn er afar háður gengi íslensku krónunnar og um 900 millj. kr. af þeim halla er rakinn beint til gengisfalls krónunnar og því hefði rekstur spítalans verið mjög nálægt jafnvægi ef stöðugleiki hefði ríkt. Í þessu ljósi ákvað heilbrigðisráðuneytið, að höfðu samráði við fjármálaráðuneytið, að krefjast þess ekki að spítalinn jafnaði uppsafnaðan halla á árinu 2009. Sú fjárhagsáætlun sem gerð var hlaut staðfestingu og samþykki af hálfu ráðuneyta. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármálastjórn 50 ríkisstofnana fær bókhald, fjárhagsáætlanir og innra eftirlit Landspítala góða einkunn. Þær athugasemdir sem gerðar eru við fjármálastjórn spítalans lúta að þeim halla sem verið hefur á rekstri spítalans á undanförnum árum og þá sér í lagi á síðustu tveimur árum sem eins og áður segir er að stórum hluta tilkominn vegna óhagstæðrar gengisþróunar. Sá halli hefur leitt til þess að neikvætt eigið fé hans í lok árs 2008 nam 1.622 millj. kr."
Mest lesið Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Innlent Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Erlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Fleiri fréttir Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Sjá meira