Leitin hefur ekki borið árangur 16. desember 2009 13:37 Leitin hefur ekki borið árangur. Mynd/Óðinn Magnason
Leit að manni sem er saknað eftir að bát hvolfdi í Fáskrúðsfirði í morgun hefur ekki borið árangur. Öðrum skipverja var bjargað en hann hafði komist um borð í gúmmíbjörgunarbát. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og Landhelgisgæslunni taka sex björgunarskip og fjögur fiskiskip taka þátt í leitinni auk þyrlu Gæslunnar. Sjö kafarar eru einnig að störfum. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst á níunda tímanum í morgun tilkynning um rautt ljós sem sást í námunda við eyjuna Skrúð í Fáskrúðsfirði. Í kjölfarið voru björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Austurlandi kallaðar út. TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var einnig kölluð út og haft var samband við nærstadda báta á svæðinu og þeir beðnir að svipast um eftir bát sem vitað var að væri við Skrúð. Að minnsta kosti fjórir bátar tóku þátt í leitinni auk björgunarbáta Neyðarblyss sást klukkan hálf tíu frá Vattanesi og kom fiskibátur að gúmmíbjörgunarbát fimm mínútum síðar. Einn maður var um borð í bátnum og var hann heill á húfi en hafði hann misst af félaga sínum en tveir menn voru um borð í bátnum sem er saknað. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu verður reynt að draga bátinn sem hvolfdi til Reyðarfjarðar. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir að björgunaraðgerðunum sé stýrt frá Vattanesi. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er tengiliður við viðbragðsaðila og þá sem taka þátt í leitinni, meðal annars úti á sjó.
Tengdar fréttir Manns saknað eftir að bát hvolfdi Manns er saknað eftir að bátur strandaði í Fáskrúðsfirði í morgun. Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Austurlandi voru kallaðar út og Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti kafara á Höfn í Hornafirði. Leit stendur yfir á svæðinu. 16. desember 2009 11:31 Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fleiri fréttir Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Sjá meira
Manns saknað eftir að bát hvolfdi Manns er saknað eftir að bátur strandaði í Fáskrúðsfirði í morgun. Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Austurlandi voru kallaðar út og Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti kafara á Höfn í Hornafirði. Leit stendur yfir á svæðinu. 16. desember 2009 11:31