Mikil reiði meðal starfsmanna 3. júlí 2009 04:15 Ef ekkert verður gert í málunum munu þeir sem ekki fengu greidd laun gera eitthvað í þeim.fréttablaðið/pjetur
Rúmlega 100 starfsmenn SPRON, sem eru á uppsagnarfresti, fengu ekki laun sín greidd 1. júlí. Gera átti upp laun og orlof starfsmanna á þriggja mánaða uppsagnarfresti. Mikil reiði er meðal starfsmanna, segir Ólafur Már Svavarsson, fyrrverandi formaður starfsmannafélags SPRON. Ástæðan er að slitastjórn SPRON sagði í tilkynningu að lög sem kvæðu á um að fjármálafyrirtæki gæti greitt starfsmönnum sínum í greiðslustöðvun giltu ekki um SPRON því að SPRON hefði aldrei farið í greiðslustöðvun. Tilkynningin var send út daginn áður en greiða átti launin. Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, segir þetta fáránlegt þar sem allir í bankageiranum hafi fengið laun sín nema starfsmenn SPRON. Sjálfur vann hann að því að setja lögin sem slitastjórnin vísar til. „Ekki datt mér í hug að þetta yrði notað gegn SPRON síðar. Slitastjórnin hengir sig í texta laganna,“ segir Friðbert. Starfsmenn gátu ekki beitt sér í málinu því að tilkynningin var send svo seint, að sögn Ósvalds Knudsen, fyrrverandi starfsmanns SPRON. „Slitastjórn kemur fram af mikilli hörku og túlkar öll vafaatriði starfsmönnum í óhag. Ef ekkert verður gert í málunum mun þessi stóri hópur hittast og ákveða næstu skref.“ Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, segir fulltrúa frá viðskiptaráðuneytinu hafa komið á fund nefndarinnar 1. júlí og kynnt henni málið. Nefndin vissi ekki af þessu fyrr en þá, að sögn Álfheiðar.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Sjá meira