Eygló: Steingrímur skýlir sig á bak við samkeppnislög 3. júlí 2009 13:41 Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
Þingmaður Framsóknarflokksins telur að fjármálaráðherra skýli sér á bak við samkeppnislög þegar hann neiti að upplýsa um verðmat á verðtryggðum og gengistryggðum lánum nýju bankanna. „Fjármálaráðherra virðist telja að þetta séu upplýsingar sem komi almenning ekki við." Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, lagði um miðjan síðasta mánuð fyrirspurn fyrir Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, á Alþingi og vildi vita um verðmat á verðtryggðum og gengistryggðum lánum nýju bankana til heimila og fyrirtækja sem hlutfall af höfuðstól. Hún telur eðlilegt að þessar upplýsingar liggi fyrir þar sem íslenskur almenningur sé fjárfestir í nýju bönkunum. Í svari fjármálaráðherra segir að nýju bankarnir séu hlutafélög í eigu ríkisins sem teljast til einkaréttarlegra aðila og njóti lögbundinnar verndar um viðskiptalegar upplýsingar. Að mati fjármálaráðuneytisins lúta þær upplýsingar sem Eygló óskaði eftir ekki að málefnum sem talist geta opinber. Þá verði einnig að líta til þess að nýju bankarnir starfi í samkeppni sín á milli, og við önnur fyrirtæki á fjármálamarkaði, og því gæti það skaðað hagsmuni félaganna verði upplýsingarnar gerðar opinberar. Eygló bendir á að henni hafi einnig verið neitað að sjá verðmat endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte/Oliver Wyman á eignasöfnum nýju bankanna. „Ég er rosalega ósatt og tel þetta ekki vera í anda þess gegnsæis þess gegnsæis sem núverandi ríkisstjórn hefur verið að boða," segir þingmaðurinn.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira