Fólk hvatt til að leggja tímanlega af stað Kristín María Birgisdóttir skrifar 3. júlí 2009 13:00 Mynd/Daníel Rúnarsson
Búast má við mikilli umferð um landið í dag þegar ein mesta ferðahelgi sumarsins gengur í garð. Umferðarstofa hvetur fólk til að leggja fyrr af stað hafi það kost á því. Dagskrá helgarinnar er þéttskipuð um allt land og úr nógu að velja fyrir þá sem hyggjast ferðast um landið. Á Akranesi verða írskir dagar haldnir í áttunda sinn. Ólafsvíkurvaka verður haldin á Snæfellsnesi, Pollamót Þórs fer fram á Akureyri, humarhátíðin verður á sínum stað á Höfn og á suðurlandi verða haldir hafnardagar í Ölfusi. Veðurspá er hin fínasta. Helgarveðrið verður milt og gott um allt land þó lítið fari fyrir sólinni. Frá Veðurstofunni fengust þær upplýsingar að veðrið verði einna best í Reykjavík og á Breiðafirði í dag. Þá verður fínt verður á suðurlandi. Á morgun fer þó að rigna sunnanlands en þurrt verður fyrir norðan. Þá verður veðrið best á suður- og vesturlandi á morgun en á sunnudaginn verður ákjósanlegast að vera fyrir norðan. Lögreglan verður með aukið eftirlit á Suðurlands- og Vesturlandsvegi um helgina og notast verður við sérstaka þyrlu við umferðareftirlit á sunnudaginn. Umferðarstofa hvetur fólk til að leggja fyrr af stað í dag hafi það kost á því, eða síðar í kvöld og dreifa þannig umferðarálaginu. Mikil umferðarteppa skapaðist á Suðurlandsvegi um síðustu helgi, sem leiddi til þess að langar bílaraðir mynduðust. Að margra mati skapaðist teppan þar sem tvær akreinar verða að einni við lok 2+1 kaflans. Til að minnka hættu á að það endurtaki sig um helgina og næstu helgar vill Umferðarstofa í samráði við Vegagerð og lögreglu hvetja ökumenn til að aka á hægri akreininni. Með því móti skapast ekki teppa eins og raun bar vitni síðastliðna helgi.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Sjá meira