Innlent

Polo á ofsahraða

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Í gær var ökumaður mældur á ferð sinni á Mýrdalssandi, á lítillri VW Polo bifreið, á 162 km hraða. Hann var sviptur ökuleyfi til 2ja mánaða og hlaut háa fjársekt.

Lögreglan á Hvolsvelli mun verða með aukið eftirlit um helgina. TF-Líf þyrla Landhelgisgæslunnar verður notuð og mun fara með lögreglunni svæðið alla leið austur á Hornafjörð að því er kemur fram í tilkynningu.

Mjög virkt eftirlit mun verða af hálfu lögreglunnar með hraðakstri, ölvunar- og fíkniefnaakstri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×