Þungt haldinn í öndunarvél 3. júlí 2009 12:20
Maðurinn sem slasaðist í flugslysinu í Vopnafirði í gær er þungt haldinn á gjörgæslu. Vakthafandi læknir á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi segir að manninum sé haldið sofandi í öndunarvél. Einn maður lést í slysinu en Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar nú málið. Flugvélin er af gerðinni Cessna 180 og er fjögurra sæta einkaflugvél með einkennisstafina TF-GUN. Tveir menn voru um borð og sátu þeir í framsætum flugvélarinnar. Vélin brotlenti í Serárdal í Vopnafirði en henni hafði verið flogið frá Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ til Vopnafjarðar-flugvallar fyrr um daginn. Í tilkynningu frá Rannsóknarnefnd flugslysa segir að flugáætlun vélarinnar hafi svo verið frá Vopnafirði um klukkan fjögur og var ferðinni heitið til Mosfellsbæjar á ný. Eftir flugtak var flugvvélinni flogið að Veiðihúsinu Hvammsgerði í Selá og bendir vettvangsrannsókn bendir til þess að vélinni hafi verið flogið á rafmagnsstreng með þeim afleiðingum að hún brotlenti. Slysið var tilkynnt til Neyðarlínu klukkan rétt fyrir klukkan fjögur. Í slysinu lést annar maðurinn og hinn er mikið slasaður og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Að sögn vakthafandi læknis á Gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi er hann þungt haldinn. Honum er haldið sofandi í öndunarvél. Rannsóknarnefnd flugslysa vinnur að vettvangsrannsókn í Selárdal og mun flytja flak flugvélarinnar til Reykjavíkur til frekari rannsóknar. Flugslysið í Vopnafirði í gær er fyrsta banaslysið í íslensku loftfari í níu ár. Með því er rofið lengsta slysahlé í íslenskri flugsögu allt frá árinu 1942, eða í 67 ár. Síðasta banaslys varð á Skerjafirði þann 7. ágúst árið 2000 og kostaði sex manns lífið þegar lítil tveggja hreyfla leiguvél skall í sjóinn eftir að hafa hætt við lendingu á Reykjavíkurflugvelli en hún var að flytja gesti af þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Síðan hafa reyndar þrjár útlendar vélar í ferjuflugi farist í hafinu við Ísland, þar af tvær á síðasta ári, en allar voru þær með erlenda flugmenn og skráðar erlendis.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Sjá meira