Maður látinn eftir að vél var flogið á línu við Selá 3. júlí 2009 06:00
Einn maður er látinn og annar lífshættulega slasaður eftir að fjögurra sæta Cessna-vél flaug á raflínur rétt við veiðihúsið Hvammsgerði við Selá í Vopnafirði. „Það er ekkert sem bendir til bilunar í vél. Mennirnir hafa líklega misreiknað flughæðina," segir Björn Sigurbjörnsson slökkviliðsstjóri á Vopnafirði. Hann segir að vélin hafi verið nýtekin á loft frá flugvellinum á Vopnafirði, en veiðihúsið er tólf til þrettán kílómetra norður af þorpinu. Gestir í veiðihúsinu urðu vitni að slysinu og Baldur Friðriksson læknir á Vopnafirði segir að svo virðist sem mennirnir hafi verið að taka lítinn hring á leið sinni suður. „Það er ólíklegt að þeir hafi verið að reyna að lenda. Þarna er engin flugbraut, enginn bali eða tún eða neitt," segir Baldur. Mennirnir hafi sér virst vera á miðjum aldri. Baldur segir að banaslys séu ávallt mikið áfall, en ekki síst í litlu þorpi þar sem langt er í stórar heilbrigðisstofnanir og engin teymi til staðar til að bregðast við svona hlutum. „Ef tveir slasast er það hópslys hjá okkur," segir hann. Presturinn á staðnum hafi veitt fólki áfallahjálp. Vélin hafði lent á Vopnafjarðarflugvelli klukkan 14.35 og flugáætlun gerði ráð fyrir að hún færi þaðan aftur um klukkan 16. Slysið varð síðan rétt eftir klukkan 16, en til stóð að lenda vélinni á Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ klukkan 18 í gær. Sjúkraflug kom frá Akureyri og sótti þann sem lifði af. Flogið var með hann til Reykjavíkur á sjöunda tímanum. Á Landspítala var ekki frekari upplýsingar að fá á tíunda tímanum í gærkvöldi en þær að maðurinn væri lífshættulega slasaður. Hjördís Guðmundsdóttir hjá Flugstoðum, sem reka flesta flugvelli landsins, segir að flugáætlun vélarinnar og annað sem viðkomi Flugstoðum hafi allt verið með eðlilegu móti. Hvorugur mannanna mun hafa verið frá Vopnafirði.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira