Innlent

Stúdentar ræða við Svandísi um frekari niðurgreiðslu í strætó

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Stúdentaráðs Háskóla Íslands á í viðræðum við umhverfisráðherra um niðugreiðslu í strætó. Hildur Björnsdóttir er formaður ráðsins.
Stúdentaráðs Háskóla Íslands á í viðræðum við umhverfisráðherra um niðugreiðslu í strætó. Hildur Björnsdóttir er formaður ráðsins. Mynd/Stefán Karlsson
Stúdentaráð Háskóla Íslands á í viðræðum við Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, um frekari niðurgreiðslu á nemakortum í strætó. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu greiða niður hvert nemakort sem framhalds- og háskólanemendur kaupa hjá Strætó bs. um 15 þúsund krónur.

Síðustu tvö ár var ókeypis fyrir nema búsetta í sveitarfélögum sem standa að rekstri Strætó bs. fyrir utan Garðabæ. Í vor var ljóst að sveitarfélögin hefðu ekki fjárhagslega burði til að bjóða upp á frítt í strætó þetta skólaárið. Stjórn Strætó bs. ákvað þó í júní að niðurgreiða nemakortin um 15 þúsund krónur.

Hildur Björnsdóttir, formaður Stúdentaráðs HÍ, segir vissulega fagnaðarefni að stúdentar þurfi ekki að greiða fullt verð fyrir kortin en það sé veruleg vonbrigði að verkefninu ,,frítt í strætó fyrir námsmenn" verði ekki haldið áfram.

„Við ákváðum að sætta okkur ekki við þessa niðurstöðu og erum því í viðræðum við umhverfisráðherra hvað varðar frekari niðurgreiðslu á kortunum. Niðurstöður úr þeirri vinnu munu vonandi liggja fyrir fljótlega," segir Hildur og bætir við að stúdentaráð bindi miklar vonir við að í framtíðinni verði mögulegt að endurvekja verkefnið og bjóða stúdentum áfram frítt í strætó.

Í síðustu viku samþykkti ríkisstjórnin að hefja gerð áætlunar um sjálfbærar samgöngur með það að markmiði að draga úr þörf fyrir einkabílinn. Af því tilefni kom fram að bæði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, og Kristján Möller, samgönguráðherra, leggja til til að opinber fyrirtæki og stofnanir niðurgreiði fargjöld í strætó fyrir starfsmenn sína til að draga úr notkun einkabíls. Þá vilja þau kanna mögulega aðkoma ríkisins að verkefninu ókeypis í strætó.


Tengdar fréttir

Ráðherrar vilja að stofnanir niðurgreiði strætó

Umhverfisráðherra og samgönguráðherra hvetja stofnanir og fyrirtæki til að taka upp heildstæða samgöngustefnu. Ráðherrarnir leggja til að opinber fyrirtæki og stofnanir niðurgreiði fargjöld í strætó fyrir starfsmenn sína til að draga úr notkun einkabíls. Þá vilja þeir kanna mögulega aðkoma ríkisins að verkefninu ókeypis í strætó.

Borgin niðurgreiðir nemakort í Strætó

Reykjavíkurborg niðurgreiðir í vetur hvert nemakort sem reykvískir framhalds- og háskólanemendur kaupa hjá Strætó bs. um 15 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×