Baráttan við eldana enn erfið 25. ágúst 2009 00:30 Vatni varpað úr flugvél Sautján flugvélar af þessu tagi eru nú notaðar við baráttuna gegn skógareldunum á Grikklandi.fréttablaðið/AP
Örþreyttir slökkviliðsmenn og sjálfboðaliðar unnu baki brotnu í gær, fjórða daginn í röð, við að halda skógareldum við útjaðar Aþenu í skefjum. Aukin aðstoð frá öðrum ríkjum barst í gær, bæði flugvélar sem dreifa vatni og liðsauki í slökkvistarfið. Rýma þurfti nunnuklaustur St. Efraíms norðan við borgina. Aldraðar nunnur voru fluttar á brott meðan barist var við eldinn með garðslöngum og sandmokstri. „Logarnir stóðu þrjátíu metra upp í himininn,“ sagði ein af nunnunum. „Sem betur fer komu þeir og björguðu okkur.“ Miklir eldar loguðu á sex stöðum í Grikklandi í gær, þar á meðal á eyjunum Evia og Skýros á Eyjahafi og á eyjunni Zakinþos við vestanvert landið. Hættulegastir voru þó eldarnir við höfuðborgina Aþenu sem hófust norðan við Maraþonsléttu og hafa borist yfir Pentelifjall rétt norðan við borgina. Sterkur vindur nærir eldana, sem hafa ætt yfir 26 þúsund hektara af skóg- og kjarrlendi, eyðilagt fjölda húsa og neytt þúsundir manna til að flýja heimili sín. Að minnsta kosti fimm manns hafa þurft á læknishjálp að halda vegna brunasára og nokkrir tugir eiga við öndunarerfiðleika að stríða, en engin alvarleg slys hafa þó enn átt sér stað.- gb
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Erlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Fleiri fréttir Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Sjá meira