Innlent

Stálu tveimur ginflöskum í Skeifunni

Þjófunum vantaði sennilega gin út í tónikið sitt.
Þjófunum vantaði sennilega gin út í tónikið sitt.

Tveir menn brutu rúðu í áfengisversluninni í Skeifunni rétt fyrir klukkan fjögur í nótt og fór annar þeirra inn í verslunina og stal þaðan tveimur Gin flöskum.

Með þýfið hurfu þeir út í nóttina og eru ófundnir, en lögreglumen eru nú að skoða nánar upptökur úr eftirlitsmyndavélum.

Það var einmitt samkvæmt upptökum úr þeim að hægt var að einskorða þýfið við ginflöskurnar tvær. Mörg ár eru síðan síðast var reynt að brjótast inn í vínbúð hér á landi, enda hafa þjófar gjarnan á orði að þeirra sé gætt eins og gullforða í öðrum löndum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×