Innlent

Vilja raunverulega skjaldborg um heimili landsins

Tafarlaust þarf að setja fram tímasetta áætlun um afnám verðtryggingar, segja Hagsmunasamtök heimilanna í yfirlýsingu. Þar segja samtökin að ráðamenn þjóðarinnar hafi slitið í sundur lögin og vitna í Þorgeir ljósvetningagoða en í yfirlýsingunni bjóða þau fram aðstoð sína við gerð samfélagssáttmálans sem nú er í smíðum.

Þegnar Íslands eru orðnir þrælar fjármálastofnana, segja samtökin, og leggja fram fjögurra síðna yfirlit og tillögur um hvað þurfi að gera til að skapa skilyrði fyrir frjálsa þegna í landinu.

Þau telja að forsendur endurreisnar sé meðal annars leiðrétting á stöðu gengis- og verðtryggðra neytendalána strax í sumar. Endurskoða þurfi útreikninga og forsendur verðtryggingar á lánum fyrir fyrsta október. Samtökin hafna því að hægt sé að senda bakreikninga á verðtryggð lánasöfn heimilanna, heimilin megi ekki vera botnlaus sjálftökusjóður til að bæta fyrir tjón sem hafi orðið vegna óábyrgrar útlánastefnu fjármálastofnana og meingallaðrar efnahagsstjórnar stjórnvalda. Þá krefjast þau þess að ábyrgð lántakenda og -veitenda verði jöfnuð með því að ekki megi ganga að fólki umfram veð.

Grunnkrafa samtakanna er að slegin verði raunveruleg skjaldborg um heimili landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×