Sextug kona meðal þeirra sem notaðir voru í lánasjóðssvindli Helga Arnardóttir skrifar 11. ágúst 2009 19:03
Nöfn leikskólakennara, bókasafnsfræðings, fyrrverandi verðbréfasala og manns sem skráður er til húsa í félagsbústöðum voru notuð til að svíkja út fjörutíu milljónir króna úr Íbúðalánasjóði. Sextug kona sem notuð var í svikunum segist ekki skilja af hverju hennar nafn var notað. Mennirnir fjórir sem nýlega var sleppt úr gæsluvarðhaldi komu sér í stjórn tveggja eignarhaldsfélaga án vitneskju stjórnenda þeirra. Svo seldu þeir tvær íbúðir sem félögin eiga í miðbæ Reykjavíkur. Þeir fölsuðu kaupsamninga, notuðu nöfn tveggja einstaklinga við kaupin og virðast þau hafa verið valin af handahófi. Annar þeirra er fjörutíu og fimm ára og er skráður til heimilis í félagsbústöðum í Breiðholti og hin er sextug kona, bókasafnsfræðingur til heimilis í Vesturbænum. Ekki náðist í manninn en konan sagðist í samtali við fréttastofu ekki skilja hvers vegna hennar nafn hefði verið valið en vildi ekki tjá sig að öðru leyti. Þá var nafn leikskólakennara notað við gerð annars kaupsamningsins og nafn fyrrverandi verðbréfasala á Wallstreet var notað sem vottur á hinum kaupsamningnum. Lítið sem ekkert hvílir á íbúðunum tveimur sem voru seldar. Fölsuð voru greiðslumöt til að fá lán hjá íbúðalánasjóði og greiddi hann svo út 20 milljóna króna lán fyrir hvorri íbúð. Önnur þeirra er fimm herbergja og hundrað og fimmtíu fermetrar staðsett á Grettisgötu. Sú er metin á tæplega fimmtíu milljónir króna en hún var seld manninum á 25,8 milljónir Hin er á Vatnsstíg, 130 fermetrar og metin á um 55 milljónir króna. Sú var seld bókasafnsfræðingnum á rúmar 25 milljónir. Enn eru nöfn einstaklinganna tveggja þinglýst á eignirnar og lánin hafa verið fryst. Guðmundur Bjarnason framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs segir sjóðinn vera fara yfir allt kerfið til að koma í veg fyrir svona svik.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Fleiri fréttir Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Sjá meira