Erlend lán verði færð í íslenskar krónur 25. ágúst 2009 02:30 þórólfur matthíasson
Guðmundur Ólafsson, lektor í hagfræði við HÍ, segir að ríkisvaldið verði að bæta skuldurum þann skaða sem það beri ábyrgð á, spurður um skoðun hans á afskriftum skulda. Skuldir hafi hlaðist upp og að mörgu leyti hafi það verið Seðlabankanum að kenna. Sjálfsagt sé því að bæta mönnum það tjón. Ekki kemur til greina að stilla vísitöluna á 1. janúar árið 2008 eins og einhverjir hafa viljað, að mati Guðmundar. Til dæmis af þeirri ástæðu að þá væri ráðist gegn eldra fólki sem hefur verið að spara. Flöt niðurfelling kæmi hins vegar til greina. guðmundur ólafsson „Meðan erfiðast er hef ég talað fyrir því að menn borgi ekki af lánum í einhvern tíma. Síðan þegar efnahagslífið kemst á réttan kjöl á að fara að huga að bótum,“ segir Guðmundur. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra viðraði hugmyndir um niðurfellingu í Fréttablaðinu á laugardag. Tvennt muni ráða niðurfellingu, greiðslugeta og veðrými. Sagði hann flata niðurfellingu ekki koma til greina. Ásgeir Jónsson, hagfræðingur hjá Kaupþingi, vill að öllum sem eru með erlend lán verði gefinn kostur á að breyta lánum sínum í íslenskar krónur, hvort sem þau verði verðtryggð eða óverðtryggð. seðlabankinn Þórólfur Matthíasson segir að Seðlabankinn hafi hugmyndir um að breyta lánum í námslán til skoðunar. Aðrir hagfræðingar hafa reifað svipaðar hugmyndir og Þórólfur. fréttablaðið/heiða „Bankarnir þurfa að aðlaga hjá sér efnahagsreikninginn og þurfa að fara yfir í krónur. Þá finnst mér eðlilegt að fólki sé boðið að skipta yfir í krónur á einhverju ákveðnu gengi.“ Bankarnir vilja ekki taka húsið af fólki sé þess nokkur annar kostur, að sögn Ásgeirs. Það er bæði óhagkvæmt og kostnaðarsamt. Vilja þeir heldur ekki sjá lán sem ekkert er greitt af. Þess vegna kæmu þessar aðgerðir bæði skuldurum og bönkum til góða. Þórólfur Matthíasson vill að þeir sem uppfylli ákveðin skilyrði geti flutt höfuðstól láns síns í lán, sem væri á svipuðum skilmálum og námslán. Afborganir yrðu miðaðar við tekjur skuldara. Einnig væri tími gefinn þar sem lánið yrði afborgunarlaust. Segir Þórólfur að hann viti til þess að Seðlabankinn hafi slíkar hugmyndir til skoðunar. Hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson og Jón Steinsson hafa reifað svipaðar hugmyndir.vidir@frettabladid.is
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Fleiri fréttir Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Sjá meira