Moore telur auðvaldsskipulagið illt Atli Steinn Guðmundsson skrifar 7. september 2009 07:29 Michael Moore.
Auðvaldsskipulagið er af hinu illa. Þetta er niðurstaða nýrrar heimildamyndar Michaels Moore. Kvikmynd Moore, Auðvaldsskipulagið: Ástarsaga, eða Capitalism: A Love Story, var frumsýnd á kvikmyndahátíð í Feneyjum í gær. Moore fer ekki í neinar grafgötur með það í myndinni að hann telur auðvaldsskipulagið beinlínis af hinu illa. Það steypi milljónum í fen fátæktar og þjóni nánast eingöngu hagsmunum hinna efnameiri. Í myndinni fer Moore ofan í saumana á starfsemi stórra banka og vogunarsjóða sem hann segir höndla með fjármuni viðskiptavina sinna á svo snúinn og flókinn hátt að fáir eða engir skilji ferlið. Einnig gagnrýnir Moore hið nána samband á milli banka, stjórnmálamanna og starfsmanna bandaríska fjármálaráðuneytisins og heldur því fram að flestar reglur á þeim vettvangi miði að því að verðbréfamiðlarar á Wall Street fitni eins og púkinn á fjósbitanum á meðan atvinnuleysi og gaddfreðinn fasteignamarkaður blasi við öðrum. Moore ávarpaði kvikmyndahúsagesti við frumsýninguna og sagði meðal annars að fjárhættuspil væru í mörgum ríkjum Bandaríkjanna bönnuð með lögum en þrátt fyrir það væri starfsemin á Wall Street eitt allsherjarfjárhættuspil þar sem peningar annarra væru að veði.
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Fleiri fréttir Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Sjá meira