Evrópusambandið sendir óvopnaða eftirlitsmenn til Georgíu 6. september 2008 23:00
Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins ákváðu í dag að senda óvopnaða eftirlitsmenn til Georgíu til að fylgjast með því að Rússar virði samkomulag um að draga heri sína frá Georgíu. Þá vilja ráðherrarnir láta rannsaka hverjir hafi átt upptökin að átökunum í síðasta mánuði. Rússar halda því staðfastlega fram að Georgíuher hafi átt upphafið að átökunum í Georgíu með því sem þeir kalla þjóðarmorð í Suður-Ossetíu. Ráðherrar ESB-ríkjanna sögðu í dag að best væri að rannsaka málið svo þetta fari ekki á milli mála. Evrópusambandslöndin saka Rússa um að vanvirða samkomulagið sem Sarkozy Frakklandsforseti fékk bæði Medvedev forseta Rússlands og Saakashvili forseta Georgíu til að undirrita. Samkvæmt því áttu rússneskir hermenn að fara á brott frá öðrum svæðum en aðskilnaðarhéruðunum tveimur. Bandarískt herskip liggur nú við akkeri fyrir utan höfnina í Poti í Georgíu, fullt af hjálpargögnum fyrir Georgíu. En Rússar eru með herflokka í Poti og segjast ætla að skoða alla gáma sem þangað berast. Svo gæti því farið að bandarískir sjóliðar með hjálpargögn fyrir Georgíumenn þurfi fyrst að fara í gegnum eftirlit rússneskra hermanna. Og þá má ekki mikið fara úrskeiðis svo ekki sjóði uppúr.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira