Lifði án hjartans í 118 daga Atli Steinn Guðmundsson skrifar 21. nóvember 2008 08:31 D'Zhana Simmons með einum lækna sinna. MYND/Reuters
Fjórtán ára bandarísk stúlka komst af í 118 daga án líffæris sem margir telja meðal þeirra mikilvægari. Hún hafði ekkert hjarta í allan þennan tíma. D'Zhana Simmons frá Suður-Karólínu í Bandaríkjunum var ekki kölluð hjartalaus vegna þess að hún væri svo kaldlynd. Í brjósti hennar bærðist einfaldlega ekkert hjarta í tæpa fjóra mánuði. Þessi fjórtán ára gamla stúlka þjáðist af dilated cardiomyopathy sem á íslensku kallast hjartavöðvaslen. Um er að ræða skerta starfsemi vinstri slegils hjartans sem valdið getur dauða án nokkurs fyrirvara. Læknar við Miami-háskóla fjarlægðu því hjarta hennar og í 118 daga var líf hennar háð tveimur gervihjartahólfum í brjóstholi hennar og dælubúnaði sem var sérsmíðaður í Kaliforníu og dældi blóði hennar viðstöðulaust um líkama hennar. D'Zhana fékk svo langþráða hjartaígræðslu 2. júlí en Adam var ekki lengi í Paradís því líkami hennar hafnaði líffærinu. Nú í lok október var annað hjarta fundið og grætt í brjósthol hennar og það starfar enn sem skyldi. Hún lýsti þeirri tilfinningu að liggja allan sólarhringinn tengd við vélbúnað sem hélt henni gangandi. Það var eins og að vera ekki alvörumanneskja, mér leið eins og ég væri ekki til, rifjaði hún upp. Nýja hjartað hennar slær en sá böggull fylgir skammrifi að helmingslíkur eru á að D'Zhana þurfi að taka við fjórða hjartanu fyrir þrítugt.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira