Fresta stokk undir Geirsgötu og Mýrargötu 9. október 2008 13:36 Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Borgarráð hefur að tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra samþykkt að fresta fyrirhuguðum framkvæmdum við byggingu stokks undir Geirsgötu og Mýrargötu. Tillagan var samþykkt samhljóða á fundi borgarráðs í morgun. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að borgaryfirvöld telji ekki rétt að ráðast í kostnað við svokallaða stokklausn í núverandi efnahagsástandi. Forathugun á byggingu samfells stokks eða jarðganga til að flytja meginstraum umferðar milli Sæbrautar og Ánanausta bendi til að beinn kostnaður við jarðgöng geti numið 11, 5 til 12,5 milljörðum en beinn kostnaður við stokk geti numið um 14 milljörðum króna. Óbeinn kostnaður við þætti eins og niðurrif húsa, færslu lagna, hjáleiðir umferðar á framkvæmdatíma og endurgerð yfirborðsgatna sé ekki innifalinn í þeim kostnaði. Í framhaldi af frestun framkvæmda við stokkinn munu Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir í samstarfi við Íslenska aðalverktaka, Portus, Austurhöfn og Vegagerðina hefja undirbúning að bráðabirgðalausn til næstu ára. Bráðabirgðalausnin feli í sér að hannaður verði tveggja akreina vegur á umræddum kafla. Við hönnun hans verði tekið mið af því að rjúfa ekki tengingu tónlistar og ráðstefnuhúss við miðborgina. Sérfræðingum á skipulags- og byggingarsviði, umhverfis- og samgöngusviði og framkvæmda og eignasviði verði falið að leiða viðræður við hlutaðeigandi aðila um nánari útfærslu þessarar bráðabirgðalausnar.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira