Innlent

Vandamál Davíðs að hann kemur úr stjórnmálum

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir vandamál Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra það að hann komi úr stjórnmálum og hafi verið þar virkur þáttakandi í 17 ár og troðið illsakir við mjög marga.

Fréttamenn ræddu við Ingibjörgu eftir þingflokksfund Samfylkingarinnar nú undir kvöld. Hún sagði að þingflokkurinn hefði rætt almennt um stöðuna í efnahagsmálum. Mikilvægt væri að traust og samstaða yrðu á milli stjórnvalda og stjórnkerfisins. Asðpurð sagði hún að ákveðin vanhöld hefðu verið á því og það væri stjórnmálamannanna að ráða bót á því.

Aðspurð hvort hún teldi að Davíð ætt að víkja sem seðlabankastjóri sagði Ingibjörg málið ekki snúast um einn mann. Þegar fréttamenn bentu á að margir væru á þeirri skoðun sagði Inigbjörg að vandamálið væri að Davíð Oddsson kæmi úr stjórnmálum og hefði verið virkur þátttakandi þar í 17 ár. Hann hefði troðið illsakir við mjög marga og það væri vandamálið. Það væri misskilningur að verið væri að ásaka hann um misgjörðir í starfi. „Vandamálið er trúverðugleikinn," sagði Davíð.

Aðspurð um fund sem forsvarsmenn Seðlabankans áttu með forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar í febrúar sagði Ingibjörg að Seðlabankinn hefði væntanlega óskað eftir fundinum og forsætisráðherra boðað til hans. Ríkisstjórnarforkólfar hefðu setið eina sex fundið þar sem erfið staða bankakerfisins hefði verið rædd. Bankakerfið hefði verið orðið allt of stórt fyrir efnahagskerfið og það hefði verið að þróast á umliðnum árum, þar á meðal í tíð Davíðs Oddssonar sem forsætisráðherra. Menn hefðu reynt að leysa málið, meðal annars með því að efla gjaldeyrisvaraforðann en það hefði ekki tekist.








Tengdar fréttir

Krefst erlendrar rannsóknar á störfum Seðlabankans

Davíð Odddsson seðlabankastjóri krefst þess að fram fari ítarleg rannsókn á vegum erlendra aðila á störfum Seðlabankans í aðdraganda bankahrunsins. Komi í ljós að mistök hafi verið gerð þurfi ekki að reka neinn, menn muni segja af sér.

Segir gagnrýni Davíðs óréttláta og óskynsamlega

Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, segir gagnrýni Davíðs Oddssonar á eftirlitið bæði óréttláta og óskynsamlega. Það hafi sinnt hlutverki sínu eins og lög kveði á um.

Til greina kemur að sameina Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið

Forsætisráðherra segir að til greina komi að sameina Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið og bráðlega verði skipað í rannsóknarnefnd vegna hruns bankanna, þar sem allt verði undir. Sagan sýnir að æðstu embættismönnum hefur verið skipt út við sameiningu stofnana.

Jón Ásgeir: Seðlabankastjóri verður að líta sér nær

Jón Ásgeir Jóhannesson lýsir furðu sinni á ummælum Davíðs Oddssonar í ræðu hjá Viðskiptaráði í morgun. Davíð gerði þar að umtalsefni að bankarnir hefðu lánað einum manni þúsund milljarða og vísaði þar væntanlega til Jóns Ásgeirs.

Segir ríkisstjórnina ekki hafa skaðast vegna ummæla Davíðs

Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir rétt að Davíð Oddsson hafi varað ríkisstjórnina við ástandinu líkt og seðlabankastjóri sagði í ræðu á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs í morgun. Árni segir að í kjölfarið hafi m.a verið farið í það að efla gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans.

Tveir seðlabankamenn í stjórn Fjármálaeftirlitsins

Davíð Oddsson seðlabankastjóri gagnrýndi Fjármálaeftirlitið nokkuð á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs í morgun. Vék hann að því í máli sínu að árið 1998 hefði allt bankaeftirlit verið flutt frá Seðlabankanum og yfir í Fjármálaeftirlitið. Heimildir þess sem voru allvíðtækar fyrir, hafi verið auknar og fjárframlög til þess stórlega vaxið á síðustu árum. Tveir seðlabankamenn sitja í stjórn FME.

Bankamálaráðherra sat ekki fund með Davíð um stöðu bankanna

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir gagnrýni Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra á stjórnvöld vegna viðvarana um stöðuna í bankakerfinu hafa komið á óvart. Hann vísar enn fremur í skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika en þar kom fram að bankakerfið stæði traustum fótum.

Ekki verið að rannsaka neitt, segir Davíð

Davíð Oddsson seðlabankastjóri segir Seðlabankann krefjast þess að opinber rannsókn með aðkomu erlendra sérfræðinga fari fram á aðdragana bankahrunsins. Nú sé ekki verið að rannsaka neitt og almenningur fái því ekki að vita hvað gerðist í raun og veru

Samfylkingarþingmenn ræddu ekki ummæli Davíðs

Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir að algjör samstaða þurfi að vera á milli ríkisstjónar og Seðlabanka þegar taka á á móti fjármunum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og búa til viðspyrnu hér á landi.

Fréttaskýring: Davíð segir ekkert að marka eigin skýrslur

Davíð Oddsson seðlabankastjóri fór mikinn á fundi Viðskiptaráðs í morgun þar sem eitt af meginatriðum í máli hans var að hann hefði margoft varað við útrásinni og afleiðingum hennar. Var Davíð meðal annars tíðrætt um fund í febrúar þar sem seðlabankamönnum hafi verið beinlínis brugðið sökum þess hve staðan var slæm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×